en
Menu
en

Fréttir

07. mars 2025

Valvika 10.–14. mars

Staðfesting á skólavist

Í valvikunni 10.–14. mars staðfesta nemendur í dagskóla umsókn sína um áframhaldandi skólavist á næstu önn. Það er gert með því að yfirfara og staðfesta val næstu annar í Innu og greiða álögð skólagjöld. Þá þurfa þeir ekki að sækja aftur formlega um skólavist.

Hér má sjá nánari leiðbeiningar um áfangaval og brauta­skipi. Nem­endum er einnig boðin aðstoð við valið í val­viku.

Athugið að valvikan á ekki við um nemendur sem eru á brautum í flugvirkjun, hljóðtækni, meistaraskóla, stafrænni hönnun, vefþróun eða í almennu dreifnámi.

 

Brautaskipti

Umsókn um brauta­skipti fer fram í Innu. Nem­endur sem hyggja á að skipta um braut og eða þeir sem eru að ljúka grunn­brautum og þurfa að velja sér fram­halds­braut. Skóla­stjóri afgreiðir brauta­skipti og samhliða velur og staðfestir áfanga fyrir næstu önn. Síðasti dagur til að óska eftir braut­ar­skiptum er í lok föstu­dags í val­viku.

 

Upplýsingar og leiðbeiningar

Leiðbeiningar vegna vals – nemendur

Leiðbeiningar vegna brautaskipta – nemendur

Valvika – opið val

Námsskipulag allra brauta

Myndræn útskýring á áfangaheitum

Leiðbeiningar vegna valviku – fyrir starfsmenn

 

Vinnustaðanám

Nem­endur á náms­brautum sem inni­halda vinnustaðanám er sér­stak­lega bent á að skoða náms­skipulag braut­ar­innar og leita aðstoðar í valinu ef á þarf að halda. Mik­il­vægt er að skoða hvort það er tíma­bært á næstu önn, t.d. ef aðeins loka önn er eftir. Nem­endur sem eru komnir með samn­ingspláss eru minntir á að sækja um að skólinn geri námssamning og stofni fer­ilbók. Sjá nánar um vinnustaðanámið hér.

 

Vinnustaðanám – hvenær, hvernig, hvað?

https://tskoli.is/wp-content/uploads/2025/02/Vinnustadanamid.pdf