Vefskólinn – skapandi tækninám
Diplómanám Vefskólans sem gefur mikla starfsmöguleika
Að loknu námi í Vefskólanum eiga nemendur að hafa næga kunnáttu og hæfni til að koma inn á atvinnumarkaðinn. Viðmótshönnuðir- og vefforritarar starfa meðal annars hjá vefstofum og í vefdeildum hjá stórum og meðal stórum fyrirtækjum sem leggja áherslu á starfsemi á vefnum. Margir starfa þar að auki sjálfstætt og við nýsköpun. Kynning á náminu 🙂
Námið í Vefskólanum tekur tvö ár og er er eina námið hér á landi sem sameinar kennslu í vefhönnun, viðmóti og vefforritun.
Skoða síðu Vefskólans og þar er hægt að sækja um.
Framsækið tækninám í Margmiðlunarskólanum
Námið er verkefnadrifið og líkist starfsumhverfi atvinnulífsins. Hröð þróun er í starfsgreininni og krefst símenntunar en nemendur eru þjálfaðir í því að temja sér þann hugsunarhátt.
Skoða síðu Margmiðlunarskólans