Nám í vefþróun

Vefþróun er nám sem hentar þeim sem vilja bæta við sig hagnýtri þekkingu sem nýtist í stafrænu samfélagi. Í náminu læra nemendur forritun, vefhönnun og notendaupplifun.
Námið er skipulagt sem þriggja anna, verkefnastýrt nám. Tvær annir eru kenndar í skólanum sem líkur með starfsnámi sem gefur góða innsýn í greinina og eflir tengslin við atvinnulífið enn frekar.
Nemendur fá reglulega heimsóknir frá reyndum hönnuðum og forriturum sem halda fyrirlestra, taka þátt í verkefnavinnu og veita nemendum endurgjöf.
Að loknu námi hafa nemendur þekkingu og hæfni til að hasla sér völl á vinnumarkaði. Vefforritarar og viðmótshönnuðir starfa meðal annars hjá hönnunarstofum, hugbúnaðarfyrirtækjum og í stafrænum deildum stórra og meðalstórra fyrirtækja.
Miðað er við að nemendur sem hefja nám í Vefþróun hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegri menntun.
Frábær tækifæri í vefþróun
Sólveig Helga Hákonardóttir útskrifaðist úr vefþróun árið 2023. Sólveig starfar í dag sem teymistjóri hugbúnaðarteymis Reykjavíkurborgar, en hún hóf störf hjá borginni árið 2023 sem framendaforritari í starfsnámi sem var hluti af náminu í vefþróun.
Sólveig er einnig menntaður kennari og starfaði sem verkefnastjóri í líkamsrækt samhliða forfallakennslu í grunnskóla áður en hún skráði sig í vefþróun.
„Ég var á þeim stað í lífinu árið 2022 að annaðhvort halda áfram á brautinni sem ég var búin að mennta mig í og fara aftur að kenna í grunnskóla eða prufa eitthvað nýtt.“
Hún hafði lengi stefnt á nám í tölvunarfræði en var þó ekki alveg tilbúin að fara aftur í háskóla með tvö lítil börn og ákvað því að kanna aðra valkosti.
„Þá rakst ég á vefþróun hjá Tækniskólanum. Námið var aðeins eitt ár og ég myndi læra vefmiðlun, vefforritun og vefhönnun – allt sem ég hafði mikinn áhuga á.“
Aðspurð hvað henni hafi þótt skemmtilegast við námið svarar Sólveig:
„Það skemmtilegasta við námið fannst mér hvað það var persónulegt og mikið af tækifærum sem maður fær ekki í hefðbundnu námi, eins og að læra í öðru landi, í tveggja vikna Erasmus+ ferð, með vinum mínum úr náminu. Mér fannst líka æði að fara í starfsnámið! Enda er ég enn að vinna á þeim stað í dag næstum þremur árum seinna.“
Hér eru nánari upplýsingar um nám í vefþróun.