Vegna COVID-19 kórónaveirunnar
Í ljósi þess að nú hefur hættustigi almannavarna verið lýst yfir vegna COVID-19 kórónaveirunnar áréttar almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mikilvægi þess að allir fylgi leiðbeiningum sóttvarnarlæknis. Nýjustu upplýsingar er ávallt að finna á vef Landlæknisembættisins: www.landlaeknir.is. Nemendur og forráðamenn eru beðnir um að fylgjast reglulega með nýjustu upplýsingum um þau svæði sem skilgreind eru sem hættusvæði. Ef nemendur eða fjölskyldur þeirra ferðast um þau svæði, þurfa þeirað fara í sóttkví skv. leiðbeiningum Landlæknis.
Nemendum með skert ónæmiskerfi eða undirliggjandi öndunarfærasjúkdóma er ráðlagt af heilbrigðisyfirvöldum að ráðfæra sig við viðkomandi sérfræðing eða heimilislækni. Einstaklingar sem finna fyrir einkennum og hafa mögulega verið útsettir fyrir smiti t.d. vegna ferðalaga eru hvattir til að hringja í síma 1700 og fá leiðbeiningar.
Þeir sem verið hafa í nánu samneyti við einstaklinga með staðfesta eða líklega sýkingu verða settir í sóttkví og hið sama á við um þá sem ferðast hafa á undanförnum dögum til skilgreindra hættusvæða. Það er ekki ólíklegt að þeim fjölgi enn sem þurfa að fara í sóttkví og því líklegt að það geti haft áhrif á skólastarfið. Þurfi kennarar að fara í sóttkví gæti orðið breyting á kennsluháttum en við munum leggja okkur fram um að halda uppi skólastarfi eins og kostur er og halda ykkur upplýstum.
Ef nemandi greinist með COVID-19 veiruna og/eða þarf að fara í sóttkví biðjum við um að haft verði samband tafarlaust við Guðrúnu Randalín Lárusdóttur aðstoðarskólameistara með tölvupósti á
[email protected].