Veitur gefa Tækniskólanum nýjan tölvustýrðan rennibekk

Tækniskólinn tók nýverið við glæsilegri gjöf frá Veitum þegar fyrirtækið afhenti skólanum tölvustýrðan rennibekk af gerðinni HAAS TL‑2 ásamt veglegum verkfærapakka til notkunar í verklegu námi nemenda. Rennibekkurinn mun nýtast afar vel í kennslu hjá málmiðnaðardeild Véltækniskólans, sérstaklega fyrir nemendur í rennismíði.
Afhending fór fram í Tækniskólanum í Hafnarfirði fyrr í vikunni þegar fulltrúar Veitna mættu á staðinn og afhentu gjöfina formlega. Bjarki Bjarnason, kennari við Véltækniskólann, veitti rennibekknum viðtöku fyrir hönd skólans úr höndum Péturs Wilhelm, verkefnastjóra hjá Veitum og fyrrum nemanda Tækniskólans í stálsmíði og vélvirkjun.
„Með gjöfinni viljum við styðja við öfluga iðn- og tæknimenntun og gefa nemendum tækifæri til að kynnast nútímalegum búnaði sem nýtist í atvinnulífi framtíðarinnar,“ segir Pétur.
Víglundur Laxdal, skólastjóri Véltækniskólans, segir gjöfina mikinn feng fyrir skólann.
„Þetta er einstaklega höfðingleg gjöf frá Veitum og við erum mjög þakklát. Kennararnir okkar eru mjög spenntir og hlakka til að nota rennibekkinn í kennslu.“ Hann bætir við að ljóst sé að nýr og tölvustýrður búnaður af þessu tagi muni styrkja verklega þjálfun nemenda verulega og tengja námið enn betur við það sem er að gerast í atvinnulífinu og þann búnað sem þar er notaður.
Við afhendinguna voru einnig viðstödd Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans og Víglundur Laxdal fyrir hönd Tækniskólans. Fyrir hönd Veitna voru það Pétur Wilhelm verkefnastjóri, Sigríður Sigurðardóttir forstöðukona stafrænnar umbreytingar og Örn Jónsson deildarstjóri reksturs vatnsmiðla.
Tækniskólinn þakkar Veitum kærlega fyrir veglega gjöf og áframhaldandi gott samstarf.