08. janúar 2026
Söngkeppni Tækniskólans
Átótjúnið, söngkeppni Tækniskólans, fer fram í Mengi miðvikudaginn 21. janúar.
Skráning til þátttöku er hafin og Tækniskólinn hvetur öll sem hafa áhuga á að taka þátt í keppninni að skrá sig.
Hljómsveit spilar undir hjá keppendum og þurfa öll sem skrá sig að mæta bæði á æfingu og í hljóðprufu fyrir keppnina.
Sigurvegari Átótjúnins mun svo keppa fyrir hönd Tækniskólans í Söngvakeppni Framhaldsskólanna 2026.
Skráningu lýkur laugardaginn 17. janúar kl. 16:00. Smellið HÉR fyrir skráningarform.
Frekari upplýsingar um keppnina og fyrirkomulag hennar veita Ingi í Framtíðarstofunni og Lára Debaruna félagslífsfulltrúi.
