Menu

Fréttir

09. janúar 2024

Vertu með!

Átótjúnið

Átótjúnið er söngkeppni Tækniskólans en á síðasta ári tóku 19 nemendur þátt! Í ár fer keppnin fram í Mengi, miðvikudaginn 7. febrúar.

Skráning er hafin á Átótjúnið 2024 og lýkur skráningu þátttakenda föstudaginn 26. janúar kl. 16:00.

Frekari upplýsingar um keppnina og fyrirkomulag hennar má fá hjá Inga Birni í Framtíðarstofunni, Lauru Daniela eða Lilju félagsmálafulltrúa.

 

Leikfélagið MARS byrjar æfingar

Leikfélagið Mars er að byrja að æfingar og undirbúning fyrir leik­sýn­ingu ársins 2024.

Fyrsti undirbúningsfundur er miðvikudaginn 10. janúar kl. 16:30 í Hátíðarsalnum í Tækniskólanum á Háteigsvegi. Á fyrsta undirbúningsfundi á miðvikudaginn er kvikmyndin Labyrinth sýnd enda er félagið að skoða að setja hana á svið. Næsti hittingur á eftir fer í að skoða handrit.

Þú getur enn þá bæst í hópinn. Endilega skráðu þig hér eða mættu á miðvikudaginn!