18. september 2018
Viltu keppa í stærðfræðikeppni framhaldsskólanema?

Forkeppni verður 9. október
Forkeppni stærðfræðikeppni framhaldsskólanema verður haldin þriðjudaginn 9. október í öllum framhaldsskólum landsins og er opin öllum framhaldsskólanemum sem vilja taka þátt.
Þátttaka er öllum að kostnaðarlausu. Keppendur á neðra stigi eru á sínu fyrsta ári í framhaldsskóla. Keppendur á efra stigi eru búnir með sitt fyrsta ár í framhaldsskóla.
Nemendur fá einingu fyrir að taka þátt í æfingatímum og keppninni
Æfingatímar fyrir keppnina verða í Tækniskólanum Skólavörðuholti í stofu 201 og eru allir nemendur velkomnir.
Nemendur sem taka þátt í æfingatímunum og keppninni sjálfri fá einingu fyrir.
Æfingartímarnir verða í stofu 201 á Skólavörðuholti:
- Fimmtudaginn 20. september klukkan 15.30.
- Miðvikudaginn 26. september klukkan 12:00
- Fimmtudaginn 27. september klukkan 15.30.
- Miðvikudaginn 3. október klukkan 12:00
- Fimmtudaginn 4. október klukkan 15.30.