fbpx
Menu

Fréttir

25. ágúst 2018

Nýsköpunarnámskeið fyrir nemendur

Nýsköpunarnámskeið fyrir nemendur

Nýsköpunarnámskeið

Nýttu þekkinguna á sérsviði þínu og eða úr lífinu á skapandi, skemmtilegu og hagnýtu nýsköpunarnámskeiði. Námskeiðið stendur frítt til boða fyrir alla nemendur Tækniskólans sem komnir eru af stað í námi sínu.

Á námskeiðinu lærir þú að skapa frá hugmynd í framkvæmd undir handleiðslu sérfræðinga í nýsköpunar- og frumkvöðlaumhverfinu á Íslandi. Nemendur fá 1 einingu fyrir námskeiðið.

Ert þú með góða hugmynd?

Skapandi, skemmtilegt og hagnýtt námskeið:
Hægt verður að nýta hugmyndir sem verða til á námskeiðinu til að fara með lengra, t.d. í frumkvöðla- eða nýsköpunarkeppnir eða fara alla leið og þróa yfir í viðskiptahugmynd.

  • Þekking á viðskiptaverkefnaferlinu (business project cycle)
  • Að geta valið nýsköpun, nýstárlega hugmynd á sínu sviði
  • Prófa að búa til eigin uppfinningu – lausn – hönnun
  • Jákvæð viðhorf til eigin atvinnustarfsemi – sjá sem álitlegan kost  
  • Færni í að skapa og kynna verkefni sín
  • Þekking á einkarétti og skráningarvernd hugmynda
  • Þjálfa leiðtogahæfni
  • Prófa að búa til fjárhagsáætlun

Nemendur geta fengið aðgang að ýmsum tækjum og tólum sem gerir þeim kleift að búa til frumgerð af hugmynd sinni. Lokaafurð getur verið í formi frumgerðar, líkans eða kynningar.

Tímasetningar og staðsetning:

  • Kennsla fer fram frá kl 17-19, dagana 28. – 30. ágúst í kennslustofu á Skólavörðuholti.
  • Nemendur fá stuðning við sjálfstæða vinnu í september.
  • Lokakynning og uppskeruhátíð í byrjun október.


Skráning:
Skráðu þig með því að smella hérna

Nánari upplýsingar veitir Ragnhildur Guðjónsdóttir, skólastjóri á [email protected]