Menu

Fréttir

05. mars 2025

Má bjóða þér rjúkandi vöfflu?

Vöfflukaffi Tækniskólans

Fimmtudaginn 6. mars fögnum við nýrri spönn með vöfflukaffi. Þá mæta stjórnendur skólans með vöfflujárn í vinnuna og baka ofan í öll sem kunna að meta góðar vöfflur.

Vöffl­urnar verða í boði í mat­salnum á Skólavörðuholti, á Háteigs­vegi og í Hafnarfirði í frímínútunum kl. 14:25.

Láttu endilega sjá þig og nældu þér í rjúkandi heita vöfflu!