Inna – Almennar upplýsingar
Inna – Upplýsinga- og kennslukerfi
Inna er upplýsinga- og kennslukerfi skólans sem heldur utan um alla þætti náms hjá nemendum, m.a. vitnisburð, einkunnir, ástundun, mætingu og námsferil. Inna er einnig kennslukerfi skólans, og er þar m.a. hægt að nálgast námsáætlanir áfanga og námsgagnalista. Mikilvægt er að nemendur gæti þess að netföng þeirra og símanúmer séu rétt skráð í Innu.
Tengill inn á Innu er neðst á vefsíðu Tækniskólans.
Athugið: Nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu.
Aðgangsorð
Nota þarf Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn á Innu, sjá leiðbeiningar. Skráðir aðstandendur nemenda yngri en 18 ára hafa einnig aðgang að Innu og geta fylgst m.a. með námsframvindu og viðveru nemandans. Einnig geta aðstandendur skráð veikindi nemandans, sjá leiðbeiningar.
Office 365 og Google – Tengja aðgang við Innu
Notendur geta tengt Office 365 og Google aðganginn við Innu aðgang sinn. Þegar notendur hafa tengt aðganginn sinn geta þeir notað innskráningu með Google og Office 365 inn á Innu, sjá leiðbeiningar. Auk þess er hægt að hlaða skrám úr One drive sem viðhengi í kerfinu.
Nemandi sem er eldri en 18 ára getur veitt aðgang fyrir aðstandanda
Þegar nemandi verður 18 ára lokast fyrir aðgang aðstandenda að Innu en nemandinn getur hins vegar opnað hann aftur og veitt aðstandendum áframhaldandi aðgang að Innu. Hafi nemandi opnað fyrir aðgang aðstandenda í Innu, geta þeir áfram skráð veikindi nemandans í Innu. Ekki er þörf á að skila læknisvottorði ef tilkynnt er um forföll í gegnum Innu, sjá leiðbeiningar.
Myndbönd
Leiðbeiningar á myndrænu formi – myndbönd sem sýna hvernig má tengjast Innu eru hér
Inna – Leiðbeiningar |
|
Afgreiðsla lykilorða | |
Hvernig aðstandendum er veittur aðgangur að Innu | |
Skráning veikinda nemanda í Innu | |
Instructions for the school system Inna |
|
Password administration | |
How to grant next of kin access to Inna | |
How to register sick leave for a student in Inna |