fbpx
Menu

Kafli 7 – Skólanámskrá 


Almennar inntökureglur

Sótt er um skólavist í Tækniskólanum á innritunarvef menntamálastofnunar. Umsóknarfrestir eru auglýstir á vef skólans. Á hverri önn velja nemendur áfanga fyrir næstu önn í samráði við umsjónarkennara sína. Frestur til að ljúka því er auglýstur á vef skólans.

  • Allir sem lokið hafa grunnskóla geta sótt um inngöngu í Tækniskólann.
  • Nemendur verða að innritast í einhvern af skólunum, eftir áhugasviði hvers og eins.
  • Skólar Tækniskólans eru margvíslegir og gilda ekki sömu reglur um innritun í þá alla.
  • Til viðmiðunar við val á nemendum er stuðst við einkunnir á skólaprófum, sérstaklega stærðfræði, raungreinum, ensku og íslensku, einkunnir í öðru námi og mætingu og öðrum þáttum sem máli skipta.
  • Þeir sem ekki hafa fullgilda einkunn úr grunnskóla fá aðstoð við að ná upp þeim greinum.

 

Atvinnuréttindi í skipstjórn og vélstjórn

Atvinnuréttindi í skipstjórn og vélstjórn er ekki hægt að fá nema að uppfylltum ákveðnum, heilsufarslegum skilyrðum. Auk þess er vísað til reglugerðar um ákvæði er varða lágmarksaldur fyrir atvinnuréttindi í skipstjórn og vélstjórn.

 

Dreifnám

Dreifnám er nám sem sameinar kosti fjar- og kvöldnáms. Í dreifnámi getur áfangi verið kenndur að öllu leyti í fjarnámi, en þá fer kennsla fram í gegnum kennsluvef skólans eða að öllu leyti í staðbundnu námi. Einnig geta áfangar verið kenndir að hluta í fjarnámi og hluta í staðbundnum lotum.

 

Iðnmeistaranám

Til að geta hafið iðnmeistaranám verður nemandi að hafa lokið sveinsprófi í viðkomandi iðngrein.

 

Mat á þekkingu nemenda

Mat úr fyrra námi miðast við að metnir eru sam­bæri­legir áfangar á þeirri braut sem stefnt er að, ef nem­andi er inn­ritaður í skólann. Ef óskað er eftir mati á námi áður en til umsóknar kemur þá þarf að senda  beiðni um slíkt á skrif­stofu skólans, sjá nánar um mat á vef skólans.

 

Reglur Tækniskólans um endurgreiðslu skólagjalda

Almennt eru skólagjöld Tækniskólans ekki endurgreidd. Í sérstökum tilfellum er hægt að sækja um endurgreiðslu til skólameistara og skulu þá færð góð rök fyrir beiðninni. Ef um endurgreiðslu er að ræða er skráningargjaldi alltaf haldið eftir. Allar slíkar beiðnir skulu berast áður en að skóli hefst. Eftir að skóli er hafinn eru skólagjöld ekki endurgreidd.

 

 

Uppfært 6. desember 2023
Áfangastjórn