Menu

Innsýn í námið

Í náminu öðlast þú skilning, þekk­ingu og færni til að sinna allri smíðavinnu í bygg­inga- og mann­virkjaiðnaði.

Kenndar eru aðferðir og verklag sem veita þér hæfni og þekk­ingu til að vinna sjálf­stætt á sérsviðum grein­ar­innar.

Námið skilar þér færni í verkstæðis- og inn­rétt­inga­vinnu, úti- og inni­vinnu á bygg­ing­arstað og viðgerða- og breyt­inga­vinnu.

Boðið er upp á nokkra áfanga í dreifnámi.

Braut­ar­lýsing

HÚ23 Húsasmíði

Húsasmiður býr yfir hæfni til að vinna sjálf­stætt og leiðbeina öðrum, þekkir ábyrgð sína, siðferðilega stöðu og getur lagt mat á eigin vinnu. Húsasmiður getur mælt út fyrir bygg­ingu og afsett hæðir, hannað og útfært ein­föld hús og hús­hluta, metið og valið aðferðir, verk­ferla, verk­færi og efni sem henta hverju sinni, metið eig­in­leika efnis og álagskrafta sem þeim tengjast, metið þörf fyrir viðhald húsa og hús­hluta og valið efni og aðferðir til viðhalds, leiðbeint hús­eig­endum um val á efni til nýbygg­inga og viðhalds. Húsasmíði er lög­gilt iðngrein.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Inn­töku­skilyrði er grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina. Þegar nem­andinn er búin með það nám getur hann sótt um nám í húsasmíði. Umsækj­endur eldri en 20 ára eða með stúd­ents­próf geta inn­ritað sig beint á brautina.

 

Námsframvinda

Húsasmíði er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími er fjögur ár með grunn­náminu, sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 72 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar

 

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

 

Verk­efni nem­enda

Nánari upp­lýs­ingar

Kynntu þér námsskipulag brauta í Bygg­inga­tækni­skól­anum.

 

Nem­endur sem hefja nám í bygg­inga- og mann­virkja­greinum verða að koma með eigin örygg­is­skófatnað, hlífðargler­augu og heyrn­ar­hlífar sem þeir skulu ávallt nota í verk­legri aðstöðu Bygg­inga­tækni­skólans. Einnig skal árétta að nem­endum er með öllu óheimilt að vinna við vélar í vélasal nema í skipulögðum áföngum þar sem kennari er til staðar.

Nem­endur sem lokið hafa grunn­á­föngum skulu verða sér út um neðangreind verk­færi og mæta með þau í verk­lega áfanga.  Þessi verk­færi er hægt að kaupa í flestum bygg­inga­vöru­versl­unum og er áætlað verð frá 25.000–40.000 kr.

  • Hefill no. 4
  • Sporjárnasett 6 stk.
  • Rissmát tré/brons mm
  • Sniðmát
  • Vinkill 150 mm
  • Klaufhamar 16oz
  • Borasett 10stk.
  • Úrsnari
  • Bitasett torx
  • Tommustokkur 1 m í millimetrum.
  • Verkfærakassi
  • Heyrnarhlífar

Nánari upp­lýs­ingar um verk­færi fá nem­endur hjá kenn­urum í verk­legum greinum.

Einnig er ætlast til að nem­endur mæti í vinnufatnaði í verk­legar greinar. Tækni­skólinn tekur ekki ábyrgð á skemmdum á fatnaði.

Með starfs­námi á fram­halds­skóla­stigi er mögu­leiki  á viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi. Slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

FAQ

Spurt og svarað

Er öruggt að ég komist í starfsþjálfun / á samning til að klára námið?

Já, mikið hefur verið að gera í bygg­ingariðnaði á Íslandi og nemar í bygg­inga­greinum hafa auðveld­lega fengið samning. Tækni­skólinn veitir einnig nem­endum aðstoð við að komast á samning ef þarf.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækni­skólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í húsasmíði fer fram á Skólavörðuholti, Hafnarfirði og Skelja­nesi 9.

Nánari upp­lýs­ingar um staðsetn­ingu og húsnæði Tækni­skólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!