Menu

Innsýn í námið

Þú öðlast þekkingu, færni og hæfni sem krafist er til sveina í greininni til að takast á við þau verkefni sem unnin eru á renniverkstæðum s.s. hönnun og nýsmíði íhluta til notkunar í tækjum og vélum.

Námið er verkefnatengt og bæði bóknám og verknámið er kennt í Hafnarfirði. Nemendur eru teknir inn í skólann bæði á haustönn og vorönn, og áfangaframboð er miðað við að nemendur hefji nám að hausti.

Nokkrir áfangar í málm- og vél­tækni­námi eru í boði sem nám með vinnu, bæði bók­legir og verk­legir áfangar (með staðlotum).

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Brautarlýsing

TH-RS25 Rennismíði

Rennismiður er lögverndað starfsheiti og rennismíði er löggilt iðngrein. Rennismiður er lögverndað starfsheiti og rennismíði er löggilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nemendum kleift að takast á við þau viðfangsefni sem rennismiðir inna af hendi. Námið samanstendur af bóklegu og verklegu námi í skóla ásamt starfsþjálfun í fyrirtækjum. Við lok námsins staðfesta nemendur kunnáttu sína og færni í sveinsprófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inngöngu í nám til iðnmeistaraprófs.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Miðað er við að nemendur hafi náð lágmarkseinkunn C úr grunnskóla í íslensku, ensku og stærðfræði. Nemendum sem þess þurfa er boðið upp á undirbúningsnám málm- og véltæknigreina á meðan lágmarksárangri í kjarnagreinum er náð.

 

Námsframvinda

Rennismíði er löggilt iðngrein. Meðalnámstími eru samtals fimm annir í skóla og vinnustaðanám samkvæmt hæfnikröfum ferilbókar að hámarki 60 vikur.

Að loknu námi

Prófskírteini af fagbraut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveinspróf í viðkomandi grein. Sveinspróf veitir rétt til að hefja nám í Meistaraskóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi en slíku námi lýkur með stúdentsprófi.

Umsagnir

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nemendur sem hefja nám í Véltækniskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr rennismíði?

Rennismiðir starfa gjarnan á sérhæfðum rennismíðaverkstæðum sem jafnan eru annað tveggja deildir innan málm- og véltæknifyrirtækja eða sérstök þjónustu- og smíðafyrirtæki.

Hvernig kemst ég á starfssamning?

IÐAN fræðslusetur sér um námssamninga fyrir málm- og véltæknigreinar. Sjá einnig næsta skref um störf í greininni.

Ég er með stúdentspróf, fæ ég það metið og hvað er námið þá langt?

Þú færð almennar greinar metnar og því styttist námið um allt að fjórðung.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvað kostar námið?

Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurningar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!