Menu

Innsýn í námið

Verknám og möguleiki á stúdentsprófi

Í námi í vél­virkjun öðlast nem­endur þekk­ingu, færni og hæfni til að annast upp­bygg­ingu og viðhald véla, kæli­kerfa og loft­stýr­inga, bilana­leit og stýr­ingar. Kunn­átta sem krafist er til sveina í iðngrein­inni vél­virkjun.

Námið er verk­efna­tengt og sam­an­stendur af bók­námi og verk­námi. Kennsla fer fram í Hafnarfirði og á Háteigs­vegi. Nem­endur eru teknir inn í skólann á haustönn og áfanga­framboð er miðað við að nem­endur hefji nám að hausti.

Nokkrir áfangar í málm- og vél­tækni­námi geta verið í boði sem nám með vinnu, bæði bók­legir og verk­legir áfangar (með staðlotum).

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Braut­ar­lýsing

TH-VV23 Vélvirkjun

Vél­virki er lög­verndað starfs­heiti og vél­virkjun er lög­gilt iðngrein. Markmið námsins er að gera nem­endum kleift að takast á við þau viðfangs­efni sem vél­virkjar inna af hendi, þ.e. upp­setn­ingu, viðgerðir, viðhald, end­ur­nýjun og þjón­ustu á hvers kyns vél- og tækni­búnaði og flutn­inga­kerfum í skipum, vinnslustöðvum, vinnu­vélum, verksmiðjum, orku­verum og orku­veitum, skipu­lagn­ingu fyr­ir­byggj­andi viðhalds, eft­ir­liti með ástandi vél­búnaðar og grein­ingu bilana. Námið sam­an­stendur af bók­legu og verk­legu námi í skóla ásamt starfsþjálfun í fyr­ir­tækjum. Námið tekur að lág­marki þrjú heil ár og við lok þess staðfesta nem­endur kunn­áttu sína og færni í sveins­prófi sem veitir rétt til starfa í iðninni og til inn­göngu í nám til iðnmeist­ara­prófs.

Inn­töku­skilyrði

Inntökuskilyrði

Miðað er við að nem­endur hafi náð lág­marks­ein­kunn C úr grunn­skóla í íslensku, ensku og stærðfræði (eða 5 í eldra kerfi). Nem­endum sem þess þurfa er boðið upp á undirbúningsnám málm- og véltæknigreina á meðan lág­marks­ár­angri í kjarna­greinum er náð.

 

Námsframvinda

Vél­virkjun er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími eru sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 60 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Umsagnir

Shape
Shape

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

FAQ

Spurt og svarað

Þarf að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nem­endur sem hefja nám í Vél­tækni­skól­anum verða að koma með eigin örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr vélvirkjun?

Vél­virkjar starfa einkum í þjón­ustu­fyr­ir­tækjum sem annast viðhald véla og vél­búnaðar, í framleiðslu­fyr­ir­tækjum sem nýta vélar í starf­semi sinni, í verk­taka­fyr­ir­tækjum bygg­inga­starf­semi og skipasmíða og í fyr­ir­tækjum sem smíða vélar og vél­búnað.

Hvernig kemst ég á starfssamning?

IÐAN fræðslusetur sér um náms­samn­inga fyrir málm- og vél­tækni­greinar. Sjá einnig næsta skref um störf í grein­inni.

Ég er með stúdentspróf, fæ ég það metið og hvað er námið þá langt?

Þú færð almennar greinar metnar og því styttist námið um allt að fjórðung.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Lánasjóður íslenskra náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á www.lin.is eða í síma 560 4000.

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sótt er um raf­rænt og sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!