Menu

Innsýn í námið

Þetta er fjöl­breytt hand­verksnám sem snertir marga fleti bygg­ingariðnaðarins.

Í náminu færð þú sér­tæka þekk­ingu á sviðum grein­ar­innar ásamt því að öðlast leikni í aðferðum og verklagi.

Nem­endur kynnast viðfangs­efnum grein­ar­innar og öðlast skilning, þekk­ingu og færni til að takast á við þau viðfangs­efni sem til­heyra grein­inni. Meðal annars grunn­gröft og spreng­ingar, hvers konar steypu­vinnu, hleðslu bygg­inga og mann­virkja, múrhúðun, lagnir í gólf og gólfaslípun, lagnir og fest­ingar flísa og nátt­úru­steins, járna­lagnir og ein­angrun undir múr­vinnu. Enn­fremur steinhleðslu og stein­lögn inni og úti ásamt múr-, steypu- og flísaviðgerðum og múr­kerfum inni og úti.

Boðið er upp á nokkra áfanga í dreifnámi.

Braut­ar­lýsing

MR17 Múraraiðn

Múrari býr yfir hæfni til að vinna sjálf­stætt og leiðbeina öðrum, þekkir ábyrgð sína, siðferðilega stöðu og getur lagt mat á eigin vinnu. Múrari þekkir öll helstu efni sem notuð eru við múr­verk úti og inni. Múrari getur skipu­lagt vinnu við jarðvegs­fyll­ingar í mann­virkja­grunnum, lagt steypustyrkt­ar­járn og bendinet í stein­steypu­virki, annast blöndun og niðurlagn­ingu stein­steypu, hlaðið úr steini og veggja­ein­ingum, múrhúðað utan og inn­an­húss, lagt flísar inn­an­húss og utan, lagt mat á, valið efni og gert við múr- og steypu­skemmdir, leiðbeint hús­eig­endum um val og á efni til nýbygg­inga og viðhalds. Múr­araiðn er lög­gilt iðngrein.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Til að hefja nám í múr­araiðn þarftu fyrst að klára grunnnám í bygginga‐ og mannvirkjagreinum. Þeir sem hafa náð 20 ára aldri eða hafa stúd­ents­próf geta inn­ritað sig beint á brautina.

 

Námsframvinda

Múr­araiðn er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími er fjögur ár með grunn­náminu, sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 72 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

 

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækni­skólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld í náminu?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Nem­endur sem hefja nám í bygg­inga- og mann­virkja­greinum verða að koma með eigin örygg­is­skófatnað, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem þeir skulu ávallt nota í verk­legri aðstöðu Bygg­inga­tækni­skólans.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennslan í múr­araiðn fer fram á Skólavörðuholti eða Skelja­nesi 9 í Reykjavík.

Nánari upp­lýs­ingar um staðsetn­ingu og húsnæði Tækni­skólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Get ég tekið stúdentspróf af brautinni?

Nem­andi sem er í starfs­námi á fram­halds­skóla­stigi á kost á viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi. Slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!