Menu

Innsýn í námið

Stafræn hönnun, vefþróun, myndvinnsla, forritun og tölvuleikjagerð

Brautin und­irbýr nem­endur undir tölvu­tækni- og hönn­un­ar­tengdar greinar á háskóla­stigi. Náminu lýkur með stúd­ents­prófi og er ætlað að brúa bil á milli hönn­unar og tækni­legrar þekk­ingar.

Námið er verk­efnamiðað og nem­endur vinna að raun­veru­legum úrlausnum.

Braut­ar­lýsing

THÖ20 Tölvubraut - hönnun

Tölvu­braut – Hönnun er skipulögð sem þriggja ára stúd­ents­braut, 200 ein­ingar. Nem­endur sem ljúka braut­inni hafa öðlast hag­nýta menntun í tölvufræðum og sta­f­rænni hönnun. Aðalmarkmið kennslu á braut­inni er að búa nem­endur undir tölvu­tækni- og hönn­un­ar­tengdar greinar á háskóla­stigi. Náminu lýkur með stúd­ents­prófi og er ætlað að brúa bil á milli hönn­unar og tækni­legrar þekk­ingar. Sveigj­an­legt náms­um­hverfi: Verk­efna­vinna sem skipu­lags­form í námi og kennslu sam­einar flesta fram­an­greinda þætti. Æskilegt er að nem­endur venjist slíkum vinnu­brögðum þegar í grunn­deild, þ.e. að taka virkan þátt í að skil­greina viðfangs­efni, leita lausna, ákveða efnistök, vega og meta upp­lýs­ingar og fjalla um mál frá ólíkum sjón­ar­hornum. Í mörgum náms­greinum er gert ráð fyrir sveigj­an­legri stunda­töflu með föstum kennslu­stundum annars vegar og vinnu­stofum hins vegar. Í föstu kennslu­stund­unum fer námið fram undir verk­stjórn kennara en í vinnu­stofum vinna nem­endur meira sjálf­stætt. Nem­endur skipu­leggja með aðstoð kennara hvaða verkum þeir vinna að í vinnu­stofum og geta þannig varið meiri tíma í þær náms­greinar sem þeir vilja leggja áherslu á hverju sinni. Þetta kallar á aukið sjálfstæði og ábyrgð nem­enda á námi sínu.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Miðað er við að umsækj­endur hafi lokið grunn­skóla með lág­marks­ein­kunn B í ensku, stærðfræði og íslensku.

Æskilegt er að nem­endur eigi nýlega far­tölvu (yngri en tveggja ára og ekki spjald­tölvu eða Chrome­book). Disk­stærð að lág­marki 100GB og vinnslum­inni að lág­marki 4GB.

Að loknu námi

Tölvu­braut hönnun opnar nem­endum leið í nám á háskóla­stigi í tölvu-, tækni- og hönn­un­arnám.

FAQ

Spurt og svarað

Hvenær hefst kennslan?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali hér á vefnum.

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefnum.

Er nemendafélag?

Upp­lýs­ingar um félagslíf og nem­enda­félag eru á síðu um félagslíf.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!