Námið hentar þeim sem hafa ekki ákveðið hvaða málm- eða véltæknigrein verður fyrir valinu s.s. stálsmíði, blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun, flugvirkjun, vélstjórn eða bifvélavirkjun.
Brautin er kennd í dagnámi í Hafnarfirði og tekur eina til þrjár annir.
Þetta er einnar annar nám í grunnáföngum almennra- og faggreina ætlað þeim sem hyggja á frekara nám í málm- eða véltæknigreinum, s.s. stálsmíði, blikksmíði, rennismíði, vélvirkjun, flugvirkjun, vélstjórn eða bifvélavirkjun. Námið hentar þeim sem hafa ekki ákveðið hvaða málm- eða véltæknigrein verður fyrir valinu, og þeim nemendum sem eiga eftir að ná lágmarksárangri í stærðfræði, ensku eða íslensku til að komast inn í fagnámið sem þeir óska.
Námsskipulag brautar eftir önnum
Ekki er gerð krafa um sérstök inntökuskilyrði, og meðan nemendur, sem þess þurfa, eru að ná lágmarksárangri í kjarngreinum eru þeir í áhugaverðu iðnnámi málm- og vélgreina samhliða.
Ekki er um önnur réttindi að ræða en að nemendur öðlast rétt til að hefja nám í faggrein eftir að hafa náð lágmarksárangri í kjarnagreinum.
Faggreinarnar eru kenndar í Véltækniskólnum og þú getur fundið þær í leit að námi undir flokknum véltækni og vélstjórn.
Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.
„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“
Nemendur sem hefja nám í Véltækniskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.
IÐAN fræðslusetur sér um námssamninga fyrir málm- og véltæknigreinar. Sjá einnig næsta skref um störf í greininni.
Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.
Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.
Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.
Sækja um hnappur er hér á síðunni.