Menu

Innsýn í námið

Með þessu námi færðu rétt­indi til að gegna stöðu yfir­vél­stjóra og 1. vél­stjóra á skipum með ótak­markað vélarafl (STCW III/​2) (að loknum sigl­inga­tíma). Þetta náms­stig veitir þér rétt­indi til starfs­heit­isins vélfræðingur. Betri und­ir­bún­ingur undir nám á háskóla­stigi í tækni­greinum, bæði hér­lendis og erlendis, er vand­fundinn.

Námið er viðbót við nám til C-réttinda og getur hafist þegar nem­endur eru langt komnir með að ljúka því námi. Námið er á fjórða þrepi og því á fag­há­skóla­stigi. Námið er bóknám með verk­legu ívafi og er kennt í Reykjavík (Háteigs­vegi). Meðalnáms­tími í skóla er 2 annir. Inn­ritað er í námið á haustönn.

Mögu­lega getur í ein­stökum áföngum verið nám með vinnu (dreifnám – fjarnám með staðlotum) í boði.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Braut­ar­lýsing

VD20 Vélstjórn D - vélstjórnarréttindi (Vélfræðingur sbr. STCW-REG. A-III/2)

Vél­stjórn­arnám skiptist í meg­in­atriðum í sex náms­stig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum upp­fylltum, rétt til að fá útgefið skír­teini til starfa sem vél­stjóri. Þessi braut er til sjötta náms­stigs, enda hafi nem­andi lokið fimmta náms­stigi. Sjötta náms­stig (rétt­indi D) er til að gegna stöðu yfir­vél­stjóra og 1. vél­stjóra á skipum með ótak­markað vélarafl (STCW III/​2). Þetta náms­stig er jafn­framt nám í kæli­véla­virkjun og veitir rétt­indi til starfs­heit­isins vélfræðingur. Í náminu öðlast nem­endur einnig viðeig­andi menntun og þjálfun þannig að þeir geti sinnt vél­stjórn­ar­störfum í landi, t.d. á sviði orku- og veitu­fyr­ir­tækja og í iðnaði.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Náms­upphaf brautar miðast við að nem­andi hafi lokið námi til C-rétt­inda vél­stjórnar skv. nýrri nám­skrá (frá 2017) eða sé langt kominn með það nám.

 

Mat á námi:

Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna
Námsmat – sérreglur í ákveðnum áföngum í skip- og vélstjórnarnámi
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólum

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið atvinnu­skír­teini sem ýmist vélavörður, und­ir­vél­stjóri, 1. vél­stjóri eða yfir­vél­stjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig (D) geta rétt­indin verið yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafli að 750 kW, undir- og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafli að 3000 kW,  1. vél­stjóri og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafli að 1500 kW, eða und­ir­vél­stjóri, 1. vél­stjóri og yfir­vél­stjóri á skipi með ótak­markaðri vél­ar­stærð. Þetta náms­stig veitir þér rétt­indi til starfs­heit­isins vélfræðingur.

Námið full­nægir þeim kröfum sem gerðar eru til bók­náms til að öðlast skír­teini STCW III/​2 sam­kvæmt alþjóðasamþykkt.

Umsagnir

Shape
Shape

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

FAQ

Spurt og svarað

Þarf ég að eiga öryggisfatnað?

Þú þarft að koma með eiginn örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Vél­stjórar og vélfræðingar starfa m.a. í verksmiðjum, á skipum, í orku­verum og þar sem gerðar eru kröfur um víðtæka þekk­ingu á vél- og tækni­búnaði. Vél­stjórn­arnám veitir rétt­indi til atvinnu um allan heim á skipum af öllum stærðum og gerðum, við fiskveiðar, flutn­inga eða á stærstu farþega­skipum.

Hvar er vélstjórn kennd?

Dagnáms­kennsla í Vél­tækni­skól­anum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi og í Hafnarfirði (Flata­hrauni og Gjótu­hrauni). Efri áfangar í náminu eru ein­göngu kenndir á Háteigs­vegi.

Hvað kostar nám í vélstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans. Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skóla­félag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í vél­stjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er svirpostur@gmail.com.

Saman mynda skóla­félög í Tækni­skól­anum Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfs­reynslu í faginu geta sótt um að fara í raun­færnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögu­lega C stigi). Sjá nánar hér.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!