Menu

Upplýsingar um bækur og námsgögn eru í Innu

Nemendur finna upplýsingar um bækur og námsgögn í Innu. Það er einnig hægt að skoða námsgagnalista fyrir haustönn 2026 í excelskjali.

Kennsluefni og verkefni fyrir nokkra áfanga í Raftækniskólanum má finna á Rafbók – Netbókasafni rafiðnaðarins. Til að nota rafbok.is þarf nemandi að skrá sig inn á síðunni.

Gull og silfur – nám til sveinsprófs er rafbók sem Iðnú gefur út. Hún er þýðing á norskri kennslubók í gull- og silfursmíði, og verður fyrst um sinn aðeins aðgengileg á netinu.

 

Gagnvirkar vefbækur – nýjung í námsefnisútgáfu

IÐNÚ útgáfa og Forlagið kynna nýjung í námsefnisútgáfu en nú stendur nemendum og kennurum til boða að kaupa áskrift að námsefni sem er gagnvirkt og í stöðugri þróun.

Hægt er að kynna sér þetta frekar og kaupa bækurnar á síðunni vefbok.is

 

Tengiliður vegna námsgagnalista: [email protected] 

 

 

 

Uppfært 24. apríl 2026
Áfangastjórn