fbpx
Menu

Houdini

Houdini og effektar (FX)

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur forritinu Houdini frá SideFX, bæði notendaviðmóti og vinnuflæði. Byggt verður kerfi sem má nota til að búa til margvíslegar plönt.

Skoðuð verða ýmis konsept innan effekta, til dæmis stærðardreifingu. Farið verður yfir Attribútur, Noise Patterns og ýmsar gagnlegar nódur, til dæmis Copy to Points nóduna.
Markmiðið er að fá góða tilfinningu fyrir vinnuflæði Houdini (svokölluðu Procedural Workflow).

Þátttakendur mæta með fartölvu. Hægt er að sækja forritið hér https://www.sidefx.com/download/

Houdini

Námskeiðslýsing

FX er svið innan VFX og Animation sem tekur fyrir að skapa náttúruleg og eðlisfræðileg fyrirbæri. Innan þess geta fallið plöntur, landslag og hlutir í umhverfi okkar sem byggjast upp á mynstri eða endurtekningu. Innan sviðsins falla líka fyrirbæri sem eru framkölluð með hermunum, til dæmis vatn, reykur, eldur eða neistar. FX tekur fyrir eðlisfræðilega hreyfingu hluta, bæði mjúkra hluta sem geta afmyndast og harðra hluta sem halda formi sínu.

Auk þess að vera notað við gerð effekta er Houdini vinsælt tól við gerð hreyfigrafíkar (Motion Graphics).

  • Leiðbeinandi

    Svava Jóhannsdóttir

  • Hámarksfjöldi

    12

  • Forkröfur

    Almenn tölvuþekking.

  • Fréttabréf

    Skráðu þig á póstlista Endurmenntunarskólans

Nánari upplýsingar

Dagsetning Vikudagur Tímasetning
Laugardagur 10:00 - 15:00
Sunnudagur 10:00 - 15:00

Alls 10 klst.

Svava Jóhanndóttir er effekta hönnuður (FX Artist og FX TD) og effekta kennari. Hún útskrifaðist frá Lost Boys School of Visual Effects árið 2015 og hefur starfað við gerð effekta fyrir kvikmyndir og teiknimyndir í Kanada, Englandi og Svíþjóð m.a. hjá fyrirtækjunum Dneg, Framestore og Mill Film.

Námskeiðsgjald:  kr.

Námskeið Endurmenntunarskólans eru styrkhæf hjá flestum fræðslusjóðum stéttarfélaga

Gjaldfært er af greiðslukortum viku áður en námskeið hefst.

Námskeiðsgjöld eru óafturkræf nema forföll séu tilkynnt með a.m.k. þriggja sólahringa fyrirvara (virkir dagar) á [email protected]

Skráningargjald er ekki ekki endurgreitt.
Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

 

 

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.