fbpx
Menu

Tækniskóli unga fólksins – Saumanámskeið (Shibori)

Langar þig að sauma tösku skreytta með Shibori lituðu efni sem þú litaðir sjálf/ur.

Shibori er skemmtileg aðferð til að lita efni og útkoman fer eftir því hvernig efnið er brotið. Þátttakendur sauma tösku sem skreytt er með Shibori litun.

Námskeiðsgjald

22.000 kr.

Dagsetning

12. júní 2023 - 15. júní 2023

Fyrirspurnir

[email protected]

Námskeiðslýsing

Fyrir 12-16 ára

Kenndar verða nokkrar aðferðir í Shibori taulitun þar sem þátttakendur læra að brjóta efnið á sérstakan hátt og efnisprufur litaðar.  Efnið er síðan notað til að skreyta handtösku sem þátttakendur sauma.

Þátttakendur eru hvattir til að koma með eigin saumavélar og áhöld á námskeiðið.

Smelltu hér til að skrá þig á póstlistann og fá reglulegar fréttir af námskeiðum okkar.

  • Leiðbeinandi

    Linda Húmdís Hafsteinsdóttir

  • Hámarksfjöldi

    10

  • Forkröfur

    Fyrir 12-16 ára

  • Fréttabréf

    Skráðu þig á póstlista Endurmenntunarskólans

Nánari upplýsingar

Tími:

12. júní mánudagur 09:00 – 12:00
13. júní þriðjudagur 09:00 – 12:00
14. júní miðvikudagur 09:00 – 12:00
15. júní fimmtudagur 09:00 – 12:00

Alls 12 klukutímar

Linda Húmdís Hafsteinsdóttir
Linda Húmdís er kjóla- og klæðskerameistari frá Tækniskólanum og starfar sem textílmenntakennari í grunnskóla. Einnig vinnur hún við búningasaum m.a. hjá Íslensku Óperunni og Borgarleikhúsinu.

Námskeiðsgjald: 22.000 kr.

Allt efni er innifalið í nám­skeiðsgjaldinu.

Gjald­fært er af greiðslu­kortum viku áður en nám­skeið hefst.

Nám­skeiðsgjöld eru óaft­ur­kræf nema for­föll séu til­kynnt með a.m.k. þriggja sóla­hringa fyr­ir­vara  (virkir dagar) á [email protected]

Skrán­ing­ar­gjald fæst ekki end­ur­greitt.

Gjaldskrá Endurmenntunarskólans

Til að fá skír­teini að loknu nám­skeiði þurfa þátt­tak­endur að vera með lág­mark 80% mæt­ingu.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.