fbpx
Menu

Innsýn í námið

Í náminu öðlast þú sér­tæka þekk­ingu á sviðum grein­ar­innar ásamt því að öðlast leikni í aðferðum og verklagi. Þú lærir að leggja hita-, neyslu­vatns- og frá­rennslis­kerfi og ýmis sérhæfð kerfi í bygg­ingar og mann­virki. Veitu­kerfi fyrir vatns- og hita­veitur og frá­rennslislagnir utan­húss, ásamt upp­setn­ingu tækja og búnaðar sem tengist og stýrir þessum kerfum.

Starfsvið sér­menntaðra pípara er víðtækt og kemur að öllum bygg­ingariðnaði og flestum framleiðslu­fyr­ir­tækjum.

Boðið er upp á nokkra áfanga í dreifnámi.

Námsskipulag brauta Byggingatækniskólans

Braut­ar­lýsing

TH-PL23 Pípulagnir

Pípu­lagn­ingamaður býr yfir hæfni til að vinna sjálf­stætt og leiðbeina öðrum, þekkir ábyrgð sína, siðferðilega stöðu og getur lagt mat á eigin vinnu. Hann þekkir helstu eig­in­leika og verkan efna og tækja og getur valið þau eftir verk­efnum. Pípu­lagn­ingamaður getur lagt vatns­hita­kerfi og neyslu­vatns­kerfi inn­an­húss og ýmis sérhæfð lagna­kerfi, lagt frá­rennslis­kerfi inn­an­húss og í jörðu, sett upp og tengt hrein­lætis- og heim­ilis­tæki og sett upp og stillt búnað í tækja­klefum. Pípu­lagn­ingamaður getur annast viðhald og viðgerðir á lagna­kerfum og búnaði tengdum þeim. Hann getur leiðbeint hús­eig­endum um val á efnum í nýbygg­ingum og við viðhald. Pípu­lagnir er lög­gilt iðngrein.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Inn­töku­skilyrði er grunnnám bygginga‐ og mannvirkjagreina. Þegar nem­andinn er búin með það nám getur hann sótt um nám í pípu­lögnum. Umsækj­endur eldri en 20 ára eða með stúd­ents­próf geta inn­ritað sig beint á brautina.

 

Námsframvinda

Pípu­lagnir er lög­gilt iðngrein. Heild­ar­náms­tími er fjögur ár að meðtöldu grunn­námi bygg­inga- og mann­virkja­greina. Þar af eru fjórar annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 96 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Próf­skír­teini af fag­braut, ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækni­skólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali Tækni­skólans.

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í Pípu­lögnum fer fram í Hafnarfirði, Flata­hrauni 12.

Nánari upp­lýs­ingar um staðsetn­ingu og húsnæði Tækni­skólans.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Nem­endur sem hefja nám í bygg­inga- og mann­virkja­greinum verða að koma með eigin örygg­is­skófatnað, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem þeir skulu ávallt nota í verk­legri aðstöðu Bygg­inga­tækni­skólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækni­skól­anum.

Get ég tekið stúdentspróf af brautinni?

Nem­andi sem er í starfs­námi á fram­halds­skóla­stigi á kost á viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi. Slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Er nemendafélag?

Nánari upp­lýs­ingar um félagslíf og nemendafélög Tækni­skólans.

Hvernig sæki ég um?

Sækja um hnappur er hér á síðunni.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!