fbpx
Menu

Innsýn í námið

750kW vélstjórnarréttindi

Með náminu aflar þú þér atvinnuréttinda til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kW (auk siglingatíma).

Námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi tilteknu vélstjórnarréttindi og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám (þeir velji námsbraut til B eða C réttinda). Aldurstakmark er 20 ár og gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka hafi veitt nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við námið. Jafnframt er vakin athygli á námskeiði til takmarkaðra 750 kW atvinnuréttinda sem veitir leyfi til að starfa á skipum styttri en 15 m (smáskipavélavörður) og viðbótarnámi til að auka þau réttindi í skip styttri en 24 m.

Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigsvegi) en allar málmiðngreinar eru þó bara kenndar í Hafnarfirði (Flatahrauni). Innritað er í námið á haustönn. Lágmarks námstími í skóla er 2 annir.

Nokkrir áfangar brautar geta verið í boði sem í dreifnámi.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu,

Brautarlýsing

VA20 Vélstjórn A - vélstjórnarréttindi á skip með aðalvél <750 kW

Vélstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sex námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem vélstjóri. Þetta námsstig (þriðja) er til réttinda til að gegna stöðu vélavarðar og vélstjóra á skipum með vélarafl 750 kW og minna. Til sjós er starfssvið vélstjóra að annast rekstur og viðhald vél- og rafbúnaðar og tryggja, í samvinnu við aðra yfirmenn um borð, að rekstur skipsins fullnægi gildandi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og mengunarvarnir. Véla- og tækjabúnaður skipa er mjög fjölbreyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlutverka. Störf vélstjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfsstétta í landi.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Umsækj­endur þurfa að hafa náð 20 ára aldri við inn­ritun. Gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka fram að því veiti nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við þetta nám og því er reynsla af sjómennsku mjög æskileg. Athuga að þessi námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast vélstjórnarréttindin og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám (þeir velji námsbraut til B eða C réttinda).

Ef þú hefur annað nám eða starfs­reynslu að baki þá má vera að hægt sé að meta eitthvað af því og stytta þannig námið sem framundan er, sjá nánar.

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið atvinnuskír­teini sem ýmist vélavörður, undirvélstjóri, 1. vélstjóri eða yfirvélstjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta réttindastig (A) geta réttindin verið vélavörður og yfirvélstjóri á skipi með vélarafl að 750 kW (ótakmörkuð lengd).

Vakin er athygli á námskeiði til takmarkaðra 750 kW atvinnuréttinda sem veitir leyfi til að starfa á skipum styttri en 12 m (smáskipavélavörður) og viðbótarnámi til að auka þau réttindi í skip styttri en 24 m – viltu kannski byrja þar?

Umsagnir

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virkilega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég auglýsingu á Facebook fyrir flugvirkjanám Tækniskólans. Auglýsingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brennandi áhuga á flugvélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flugvélatengdum síðum á Facebook.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum samfélagsins. Fólk sem hafði mismikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloftanna með mér.

Námið er skemmtilegt og mjög fjölbreytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kennararnir mjög færir að einfalda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunnátta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkjarfélögunum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akureyri í verklegu námi virkilega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vélstjórnarnámið er mjög fjölbreytt, inniheldur mikið af nytsamlegum upplýsingum og hefur frábæra kennara sem miðla þekkingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli eindregið með þessu námi ef að þú ert forvitin/n um virkni hluta og/eða viðgerðir.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjölbreytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskólanum.“

FAQ

Spurt og svarað

Er hægt að taka stúdentspróf með náminu?

Námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast vélstjórnarréttindin og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám. Þeir nemendur ættu frekar að velja námsbraut fyrir B-réttindi eða hærri réttindi og lýkur námi til vélstjórnarréttinda C og D með stúdentsprófi.

Þarf ég að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nemendur sem hefja nám í Véltækniskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Nemendur sem lokið hafa námi til vélstjórnarréttinda A hafa öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem vélavörður á skipi með vélarafl 750 kW og minna og sem yfirvélstjóri á skipi með vélarafl 750 kW og minna að loknum 9 mánaða siglingatíma sem vélavörður. Með þessi skírteini geta útskrifaðir nemendur unnið þessi störf um borð í skipum sem notuð eru í ýmsum atvinnugreinum, s.s. við fiskveiðar, farþegaflutninga eða ferðamannaiðnaði.

Hvar er vélstjórn kennd?

Dagnámskennsla í Véltækniskólanum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi og í Hafnarfirði (Flatahrauni og Gjótuhrauni).

Hvað kostar nám í vélstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækniskólans.

Fyrir áfanga í dreifnámi er greitt einingagjald fyrir sérhvern áfanga og eitt skráningargjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skólafélag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í vélstjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er [email protected].

Saman mynda skólafélög í Tækni­skól­anum Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir framhaldsskólaáfangar eru almennt metnir og einhverjum tilvikum nám úr háskólum og sérskólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Í vélstjórnarréttindum A eru þó engir almennir áfangar, en fagáfanga er hægt að meta úr öðru sambærilegu námi, t.d. málmiðngreinum og vélvirkjun. Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára staðfesta starfsreynslu í vélstjórnargreinum geta farið í raunfærnimat. Raunfærnimat er unnið í samstarfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.

Nokkrar greinar eru metnar í raunfærnimati og getur það stytt námstímann eða auðveldað nemendum að taka það sem vantar upp á réttindin með vinnu. Sjá nánar hér.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!