Kafli 21 – Skólanámskrá
Tækniskólinn á í samstarfi við fjölmörg fyrirtæki um nám nemenda og hefur bæði verið í formi heimsókna og einnig fer hluti af náminu fram í fyrirtækjum í formi vinnustaðanáms. Nám í vefþróun og K2, tækni- og vísindaleið eru dæmi um námsleiðir þar sem nemendur vinna verkefni í samstarfi við ýmsar stofnanir og fyrirtæki. Flugvirkjunarnámið er kennt í samstarfi við viðhaldsfyrirtæki í flugrekstri og fer t.a.m. hluti námsins fram í Þýskalandi. Skólinn býður einnig upp á starfsréttindaþjálfun kadetta í skipstjórn og vélstjórn sem uppfyllir alþjóðlega staðla um skipstjórnar- og vélstjórnarmenntun, skv. STCW. Nánar má lesa um kadetta námið, siglingatíma og hag nemenda í STCW samþykktinni í II. kafla.
Tækniskólinn er með samstarfssamning við Háskólann í Reykjavík um kennslu á námsbrautinni K2 tækni- og vísindaleið. Nýtt stjórnunarnám í hafsvæðastjórnun þar sem um er að ræða samstarfsverkefni Landhelgisgæslu Íslands, Háskólans á Bifröst og Tækniskólans um nám sem leggur áherslu á leit og björgun á sjó, leiðtogafræði og hafsvæðastjórnun.
Erlent samstarf er hluti af stefnu Tækniskólans. Einkum er um að ræða samstarf sem byggir á Erasmus+ styrkjum Evrópusambandsins. Nemendur Tækniskólans nýta sér Erasmus+ styrki og frá skólanum fara bæði hópar og einstaklingar í ferðir frá einni viku til 12 mánaða starfsþjálfunar erlendis. Starfsfólk skólans getur einnig sótt um styrki til að kynna sér skóla og kennsluhætti í Evrópu.
Margir erlendir gestir heimsækja Tækniskólann á hverju ári, bæði aðilar sem eru í samstarfsverkefnum með skólanum sem og skólafólk sem vill kynna sér starfsemi skólans.
Sjá nánar um alþjóðlegt samstarf
Uppfært 21. október 2025
Áfangastjórn