Skipstjórnarnámið skiptist í réttindastig sem hvert um sig veitir réttindi til starfa um borð í skipum af mismunandi stærð og gerð. Námið er skipulagt sem samfellt tveggja til átta anna nám, eftir réttindastigum. Nám til stúdentsprófs er sjö annir.
Námið felst bæði í bóknámi og verknámi. Verknámið fer fram í Sjómannaskólanum á Háteigsvegi. Bóknámið er bæði hægt að taka í dagskóla og dreifnámi.
Eingöngu er opið fyrir umsóknir í dagnám fyrir haustönn en opið er fyrir umsóknir í dreifnám báðar annir.
Þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfsreynslu í faginu geta sótt um að fara í raunfærnimat.
Starfsréttindaþjálfun kadetta byggir á því að veita nemendum um borð í skipum viðeigandi leiðbeiningar og kennslu í sjómennsku, skipstjórn og vélstjórn, eftir því sem við á, á skiplagðan hátt af reynslumiklum fagmönnum sem eru um borð í skipunum.
Nánar um kadettakerfið og starfréttindaþjálfun.
Námið í skólanum gerir nemendur færa um að stjórna skipum og mannskap. Menntunin er tæknileg en líka fjölbreytt.
Að klára námið hjá okkur veitir fjölbreytta framtíðarmöguleika sem geta gefið góðar tekjur.
Verið öll velkomin í réttindanám sem stendur á traustum grunni.
Dagnámskennsla í Skipstjórnarskólanum fer að mestu fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi.
Námi til skipstjórnarréttinda C og D lýkur með stúdentsprófi.
Nemendur sem hefja nám í Skipstjórnarskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu véltækninámi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.
Áréttað skal að nemendum er með öllu óheimilt að vinna við vélar og tæki nema í skipulögðum áföngum þar sem kennari er til staðar.
Þú færð almennar greinar metnar og því styttist námið um allt að fjórðung.
Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfsreynslu í faginu geta sótt um að fara í raunfærnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögulega C stigi). Sjá nánar hér.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Já Endurmenntunarskóli Tækniskólans er reglulega með fjölbreytt námskeið í boði og mörg í skipstjórnargreinum. – sjá lista yfir námskeið í skipstjórn.