fbpx
en
Menu
en

Breakout rooms í Teams

19. janúar 2021

Breakout rooms í Teams

Hægt er að búa til breakout rooms í Microsoft Teams til að bjóða nemendum uppá vettvang fyrir hópvinnu. Til þess að búa til þessi breakout room er smellt á eftirfarandi merki inni í fundi á Teams

Næst opnast gluggi þar sem hægt er að stilla inn fjölda herbergja og hvernig þið viljið setja nemendur í hópa. Hægt er að láta Teams sjá um að skipta upp nemendum í hópa eða gera það sjálf.

Hægt er að búa til allt að 50 breakout rooms í Teams.

Þegar að herbergin eru komin í gang og nemendur farnir að nota þau geta nemendur síðan náð athygli kennara með því að senda skilaboð beint á hann á Teams og getur þá kennarinn hægrismellt á það herbergi sem nemandinn er í og valið Join Room til að koma inn og aðstoða. Einnig getur kennari þar endurnefnt herbergin, opnað og lokað þeim og einnig eytt þeim.