en
Menu
en

Sækja forrit

07. október 2024

Sækja forrit

Síðast uppfært: 7. Október 2024

Þessar leiðbein­ingar sýna þér hvernig á að sækja forrit með Company portal.

───

Yfirlit:

  1. Opnaðu Company Portal
  2. Skráðu þig inn
  3. Sækja forrit

1. Opnaðu Company Portal

Byrjaðu á því að finna og opna Company Portal í tölvunni þinni. Þú getur gert þetta með því að smella á Windows táknið neðst í vinstra horninu og skrifa “Company Portal” í leitargluggann.


2. Skráðu þig inn

Þegar Company Portal opnast, munt þú sjá innskráningarviðmót. Microsoft reikningurinn þinn ætti nú þegar að vera tengdur og þarf þá bara að smella á hann, annars þarft þú að slá inn Tækniskóla netfangið þitt og lykilorð.


3. Sækja forrit

Eftir að þú hefur skráð þig inn, smelltu á “Apps” flipann til að skoða öll tiltæk forrit. Þú getur flett í gegnum listann eða notað leit ef þú veist nákvæmlega hvaða forrit þú ert að leita að. Þegar þú finnur forritið sem þú vilt setja upp, smelltu á það og ýttu síðan á “Install” hnappinn til að sækja forritið.

Athugaðu að það getur tekið smá tíma að setja upp forritið.