fbpx
Menu

Veik­indi – vottorð

Athugið að ekki þarf að hringja í skólann ef nem­andi kemst ekki í kennslu­stund og/​eða námsmat vegna veik­inda. Veik­indi eru skráð í Innu og nemendur þurfa að skrá sig alla daga sem þau eru fjarverandi.

Stýrimannaskólinn

Nemandi yngri en 18 ára – Forráðamenn skrá veik­indi beint inn í InnuEf ekki er hægt að skrá veik­indi í Innu geta forráðamenn sent veik­inda­til­kynn­ingar á [email protected].

Nemendur, 18 ára og eldri, geta nú til­kynnt hefðbundin veik­indi í Innu án þess að leggja fram lækn­is­vottorð.

Hægt er að skrá veikindi fyrir hálfann eða heilan dag. Athugið að aðeins er hægt að skrá veik­indi samdægurs eða einn dag fram í tímann.

Athugið, ef veikindaforföll nemanda fara yfir 10 skipti á önn, sama hvort um er að ræða heilan eða hálfan dag, þá þarf nemandi að fara til námsráðgjafa eða skólastjóra. .

Það skal tekið fram að kenn­urum og öðru starfs­fólki Tækni­skólans er ekki heimilt að gefa nem­endum leyfi í tímum.

Leiðbeiningar til að skrá veikindi

 


Langvinn veikindi

Nem­endum sem eiga við lang­vinna eða þráláta sjúk­dóma að stríða eða verða fyrir áföllum sem hamla skóla­göngu þeirra á önn­inni er bent á að ræða við náms- og starfsráðgjafa.

Íþróttir
Þeir nem­endur sem ekki geta stundað íþróttir verða að skila vottorði innan viku frá afhend­ingu stunda­skrár.

 


Leyfi

Hægt er að sækja um leyfi, gegn staðfest­ingu frá for­eldrum vegna eft­ir­far­andi:

  • Æfingar/leitir á vegum björgunarsveita
  • Fjarvera vegna andláts í nánustu fjölskyldu
  • Ferðir/æfingar á vegum landsliða/félagsliði í íþróttum og vegna tónlistarnáms
  • Námskeið/námsferðir t.d. á vegum skiptinemasamtaka
  • Tekið skal fram að ekki eru veitt leyfi vegna skemmtiferða

Nemendum eru ekki reiknaðar fjarvistir vegna viðurkenndra ferða á vegum skólans

Kenn­arar veita ekki leyfi.

Öll leyfi eru háð samþykki aðstoðarskóla­meistara.

 


 

Uppfært 8. ágúst 2024
Áfangastjórn