Greindu betur!

Nemendur á K2 hafa í gegnum árin verið sigursælir í Greindu betur, keppni í tölfræði- og upplýsingalæsi á vegum Hagstofu Íslands. Verkefnin hafa tekið á fjölbreyttum samfélagslegum viðfangsefnum, meðal annars húsnæðismarkaði, íbúafjölgun, stöðu nemenda með erlendan bakgrunn í íslensku skólakerfi, leigumarkaði og umhverfismálum.
Sérstaklega má nefna verkefni um losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi, sem hlaut 2. sæti í eldri flokki Evrópsku tölfræðikeppninnar og var hrósað fyrir framúrskarandi tölfræðilega greiningu árið 2025.



