Menu

Nemendur

Nem­endur Tækni­skólans heim­sóttu CERN

Nú í byrjun nóvember fóru nemendur Tækniskólans ásamt tveimur kennurum til Genfar og heimsóttu CERN, Kjarnrannsóknastofnun Evrópu. CERN var stofnað 1954 og er staðsett við Genf, þar sem landamæri Sviss og Frakklands liggja.

Nem­endur Tækni­skólans heim­sóttu CERN

Þarna vinna vís­inda­menn frá yfir hundrað löndum að því að skilja minnstu ein­ingar efn­isins og kraftana á milli þeirra. Til þess eru notaðir hraðlar, tæki sem koma ögnum á gríðarlegan hraða með rafsviði og halda þeim á braut með seglum.

Stærsti hraðallinn er Stóri sterkeindahraðallinn, LHC, 27 km langur hringur um 100 metra undir jörðu, þar sem róteindum er hraðað upp í 99,9999991% af ljóshraða og þær látnar rekast saman. Eindahraðallinn kostaði um 1000 milljarða íslenskra króna í smíðum.

Göngin fara reyndar þvert yfir landa­mærin, svo róteind­irnar skjótast milli landa um ellefu þúsund sinnum á sek­úndu.

Til­gang­urinn er að búa til agnir sem ekki finnast í venju­legu efni og sjá hvernig þær hegða sér, og vonin er meðal annars sú að finna þar vís­bend­ingar um huldu­efnið, sem talið er að um fimm sinnum meira sé til af en öllu venju­legu efni í alheim­inum. Enginn hefur hins vegar ennþá séð huldu­efni beint.

Við árekstrana breytist hreyfi­orka róteind­anna í nýjar agnir, sam­kvæmt E = mc², og því meiri orka, því þyngri agnir er hægt að framleiða. Með þessu er líkt eftir aðstæðum eins og þær voru brota­broti úr sek­úndu eftir Mikla­hvell.  Segl­arnir sem halda róteind­unum á braut­inni eru kældir niður í 271 stiga frost, sem er kaldara en úti í geimnum.

Fyrst skoðaði hóp­urinn samt Synchrocyclotron, fyrsta hraðal CERN. Hann var tekinn í notkun 1957 og keyrður alveg til 1990. Með honum voru fyrstu til­raunir stofn­un­ar­innar gerðar. Nú stendur hann sem sýn­ing­ar­gripur og hóp­urinn stillti sér að sjálfsögðu upp fyrir framan hann í mynda­töku.

Svo fékk hóp­urinn að koma í stjórnstöð ATLAS, eins af fjórum stóru nem­unum við LHC. Þar er fylgst með árekstrum allan sól­ar­hringinn þegar neminn er í gangi.  Neminn sjálfur er 46 metra langur og hærri en fimm hæða hús. Þar fara fram millj­ónir árekstra á sek­úndu.

Í ATLAS og syst­ur­tilraun­inni CMS fannst ein­mitt Higgseindin árið 2012, og þeir sem komu upp­runa­lega með kenn­inguna um þá eind, Peter Higgs og François Englert, fengu Nóbelsverðlaun í eðlisfræði árið eftir

Nem­endur fengu þannig að standa á staðnum þar sem þessi mik­il­vægi atburður vís­inda­sög­unnar gerðist sem var mjög áhrifa­mikið.

CERN hefur líka skipt máli fyrir fleira en eðlisfræði. Ver­ald­ar­vef­urinn (www og html) varð til þar 1989, þegar Tim Berners-Lee vildi gera vís­inda­mönnum auðveldara að deila gögnum sín á milli. CERN gaf tæknina frá sér end­ur­gjalds­laust, og sá sem les þetta á netinu nýtur góðs af því.

Eftir CERN lá leiðin á Vís­inda­sögu­safn Genfar, Musée d’histoire des sciences, sem er í gam­alli villu við Genfar­vatn. Þar eru tæki frá 17. til 19. öld, sjón­aukar, smá­sjár, loft­vogir, sólúr og raf­magnsvélar, og sýnt hvernig menn fóru að því að mæla og gera til­raunir áður en nokkur tölva var til. Það var sér­stakt að sjá þetta sama dag og nýj­ustu tækin í CERN.

Ferðin er til Frakk­lands og Sviss og er styrkt af Era­smus+ áætl­un­inni

Verkefni frá nemendum

K2 í Umhverfisfréttafólki

K2 nemendur láta sig umhverfið varða

Saga, vísindi, tækni og samfélag mætast

París – Borg vísinda og tækni!