Birting lokaeinkunna
Kæru nemendur
Senn líður að annarlokum og við viljum benda nemendum á nokkur mikilvæg atriði sem gott er að hafa í huga áður en önninni lýkur.
Annarlok og námsmatsdagur
Síðasti starfsdagur samkvæmt námsáætlun og stundaskrám er birtur í skóladagatali. Kennslulok áfanga geta verið breytileg eftir því hvernig áfangar eru skipulagðir en nánari upplýsingar má finna á Innu.
Mánudagurinn 19. maí er námsmatsdagur, þá er mismunandi eftir áföngum hvort nemendur eiga að vinna í verkefnum, þurfa að mæta í próf eða skila lokaverkefnunum. Nemendur fá upplýsingar um það hjá sínum kennara og hafa samband við hann ef einhverjar spurningar vakna.
Lokaeinkunnir og viðtalstímar
Lokaeinkunnir verða birtar í Innu miðvikudaginn 21. maí. Þennan sama dag verða kennarar til viðtals í sínum deildum frá kl. 10:00–12:00. Nemendur eru hvattir til að skoða námsmat, fara yfir einkunnir og nýta sér viðtalstímana ef þeir hafa spurningar eða óska eftir endurgjöf.
Útskrift Tækniskólans
Útskrift Tækniskólans fer fram í Hörpu, í salnum Silfurbergi (2. hæð), laugardaginn 24. maí.
- Fyrri athöfn hefst kl. 12:00
- Síðari athöfn hefst kl. 16:00
HÉR má sjá upptöku af upplýsingafundi sem haldin var fyrir útskriftarnemendur þann 13. maí.