29. október 2024
Fjölmenni í stórafmæli
Árið 2024 eru 120 ár liðin frá því að Iðnskólinn í Reykjavík var stofnaður og af því tilefni var boðið til veislu í Tækniskólanum á Skólavörðuholti. Hátt í 150 gestir mættu í veisluna og var mikið um gleði þar sem fyrrum starfsfólk skólans hittist í bland við margt af núverandi starfsfólki Tækniskólans.
Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari, flutti hátíðarkveðju í tilefni dagsins og hjónin Ellen Kristjánsdóttir og Eyþór Gunnarsson fluttu tvö lög. Þá lýsti Frímann Ingi Helgason ljósmyndasýningu, sem sýndi myndir úr sögu Iðnskólans, með miklum tilþrifum. En Frímann Ingi var kennari við skólann um árabil.
Við þökkum þeim sem mættu, kærlega fyrir komuna!
____________________________________
Nánar um sögu Iðnskólans í Reykjavík má lesa hér.