Menu

Fréttir

03. september 2025

Nýnemaklúbbakvöld og nýnemaball

Nýnemaklúbbakvöld á Skólavörðuholti

Miðvikudaginn 3. september kl. 17:00–21:00 verður fyrsta nýnemaklúbbakvöld skólaársins á 4. hæðinni á Skólavörðuholti. Nýnemakvöldin eru frábært tækifæri fyrir nýnema til að kynnast félagslífinu í Tækniskólanum, taka þátt í starfi klúbba og nefnda og hitta aðra nemendur í skemmtilegu umhverfi.

 

Á dagskrá:

  • Skráning í viðtöl fyrir þau sem hafa áhuga á stöðu nýnemafulltrúa í stjórn NST
  • Skráning í Gettu betur prufur
  • Skráning í prufur fyrir rafíþróttalið skólans
  • Opin æfing hjá leikfélaginu MARS, kl. 19:00–21:00 í stofu 416
  • I ❤️ Tæknó bolagerð í Framtíðarstofunni
  • Nördaklúbburinn, DND og fleiri klúbbar bjóða nýnema velkomna
  • Tilnefningar á nýjum klúbbum skólarárið ’25-’26
  • Sala á Tækniskólapeysum
  • Léttar veitingar: gos, nammi og snakk

 

Skráningarskjöl í prufur og félög verða aðgengileg á www.nst.is að klúbbakvöldi loknu. Næsta klúbbakvöld verður haldið miðvikudaginn 17. september. Við hvetjum nýnema eindregið til að taka þátt og kynna sér fjölbreytt tækifæri sem félagslífið í Tækniskólanum býður upp á.

 

Nýnemaball í Víkinni

Fyrsta ball skólaársins, Tropical Ballið, fer fram miðvikudaginn 10. september í Víkingsheimilinu, Traðarlandi 1, Fossvogi. Húsið opnar kl. 22:00 en lokað verður fyrir inngöngu kl. 23:00. Ballinu lýkur kl. 01:00.

Á ballinu verður öryggisgæsla frá GO öryggi, starfsfólki skóla og heilbrigðisstarfsfólk á staðnum. Foreldrar og forsjáraðilar eru hvattir til að sækja börn sín að balli loknu. Ekki er leyfilegt að koma með tóbak, nikótínpúða, rafrettur, mat, tyggjó eða vökva (svo sem drykki eða ilmvatn).

 

Miðasala

 

Fyrirmyndarpottur

Á viðburðum NST er lögð áhersla á öruggt umhverfi og jákvæða stemningu. NST býður nemendum að taka þátt í fyrirmyndarpottinum með því að blása í áfengismæli við innganginn. Þau sem taka þátt eiga kost á peningaverðlaunum. Athugið að ölvun ógildir miðann. Fleiri góðar upplýsingar um skólaböll má finna hér