fbpx
en
Menu
en

Fréttir

09. apríl 2020

Stoðþjónusta og aðstoð

Stoðþjónusta og aðstoð

Kæru nemendur og forráðamenn

Hér koma upplýsingar um þjónustu náms- og starfsráðgjafa, sálfræðings, námsver og aukatíma í stærðfræði meðan á lokun skólahúsnæðis stendur. Vinsamlegast kynnið ykkur þær vel. Starfsfólk stoðþjónustu skólans hvetur ykkur til að vera í sambandi og leggur áherslu á að þjónustan er ekki síður mikilvæg fyrir ykkur núna.

Náms- og starfsráðgjafar

  • Hægt er að hringja og senda póst eins og áður.
  • Hægt er að panta símatíma í INNU. Sjá nánar neðar. Athuga þarf að rétt símanúmer sé skráð í INNU. Ef nemandi pantar tíma í INNU hringir ráðgjafinn í viðkomandi á þeim tíma sem var valinn.
  • Ráðgjafarnir munu í sumum tilfellum setja sig í samband við nemendur.
  • Forráðamenn eru einnig hvattir til að vera í sambandi ef einhverjar spurningar vakna.
    Hér eru nánari upplýsingar um náms- og starfsráðgjöf.

Benedikt Bragi sálfræðingur mun áfram bjóða upp á sálfræðiviðtöl.

Að panta tíma í INNU

  • Neðst á forsíðu Innu skal velja „Panta viðtalstíma“.
  • Því næst þarf að velja „nafn“ í felliglugga og svo velja hentugan tíma.

Námsver

Kennarar í námsveri sinna nemendum í gegnum Microsoft teams á eftirfarandi tímum:

  • Hanna Bjartmars, [email protected] , alla daga kl.10:00 – 14.00.
  • Ragnhildur Blöndal, [email protected], á þriðju- og fimmtudögum kl. 10:00 -15:00.
    Í næstu viku verður einnig hægt að hringja í þær og munu símanúmer þeirra þá birtast hér á vef skólans.

Aukatímar í stærðfræði

Aukatímar verða áfram á laugardögum kl.10:00 – 12:00 en í gegnum Microsoft Teams.

Nemendur sem vilja nýta sér aukatímana þurfa að senda póst á Ævar Rafn kennara, [email protected], í síðasta lagi kl. 16:00 á föstudögum. Ævar mun svo setja hóp af stað hvern laugardag og þetta þarf að endurtaka í hverri viku. Athugið að það verða engir aukatímar dagana 4. og 11. apríl.

Ég hvet ykkur til að nýta ykkur þjónustuna sem í boði er og ekki hika við að hafa samband ef eitthvað er.

Kær kveðja, Guðrún Randalín aðstoðarskólameistari