Nám í grafískri miðlun er fjölbreytt og gagnlegt nám. Með tilkomu nýrrar námskrár og sameiningu iðngreinanna prentsmíð, prentunar og bókbands undir einu heiti, prentsmíð, opnast möguleikar fyrir nemendur að taka vinnustaðanám á brautinni og rétt til sveinsprófstöku í prentsmíð sem er löggild iðngrein.
Grafísk miðlun er einnig leið til stúdentsprófs og frekari undirbúnings fyrir áframhaldandi nám. Í dag gerir atvinnulífið þá kröfu að nemendur fái góða yfirsýn í náminu og geti tekið að sér fjölbreytt störf á sviði upplýsingagreina í framtíðinni.
Í verkefnum námsins er m.a. unnið með hreyfimyndagerð, vefvinnslu, grafíska vinnslu, myndvinnslu, umbrot, tæknilegan frágang, prentun og bókband.
Dæmi um verkefni í náminu:
Nemendur læra að vinna alla verkþætti, þar á meðal lokafrágang, prentun og bókband.
Nám í grafískri miðlun er 150 einingar í skóla sem eru 5 annir í fullu námi. Eftir það gefst nemendum kostur á að fara í starfsþjálfun á vinnustað sem gefur kost á að þreyta
sveinspróf eða taka 50 einingar til viðbótar og útskrifast með stúdentspróf. Námið skiptist milli almennra greina og faggreina og eru námslok á 3. hæfniþrepi.
Markmið námsins er að nemendur öðlist þá þekkingu og færni sem er nauðsynleg í því fjölbreytta tækni og sköpunar umhverfi sem er í greininni í dag. Í náminu læra nemendur að vinna grafíska vinnslu fyrir hina ýmsu miðla og fá þjálfun í hugmyndavinnu og nauðsynlegri tækni til að útfæra hugmyndir og fullvinna verk.
Nemendur þurfa að hafa lokið skyldunámi í samræmi við ákvæði aðalnámskrár grunnskóla með lágmarkseinkunn C í íslensku, ensku og stærðfræði.
Nemendum gefst kostur á að fara í starfsþjálfun á vinnustað sem gefur kost á að þreyta sveinspróf sem veitir rétt til sveinsprófstöku í prentsmíð sem er löggild iðngrein eða að taka 50 einingar til viðbótar og útskrifast með stúdentspróf. Námið skiptist milli almennra greina og faggreina og eru námslok á 3. hæfniþrepi.
„Eftir þetta nám við Upplýsingatækniskólann, margfaldaðist reynslan mín og vitneskja þannig ég leyfði mér að trúa að ég gæti unnið við það sem mér finnst skemmtilegt. Yndislegir kennarar, skemmtilegur nemendahópur og fjölbreytt verkefni gerðu mig mjög tilbúinn að takast á við áskoranir og verkefni í faginu. Eins græddi ég fullt af tengingum og sambönd sem ég held upp á enn í dag.“
„Ég finn það vel í háskólanáminu hversu gott það er að hafa lært grafíska miðlun. Margir í mínu námi höfðu engan grunn né þekkingu áður en þau komu í háskólanám en þetta hefur hjálpað helling. Mér finnst líka mjög mikilvægt að við höfum fengið að læra um prentiðnaðinn vegna þess að hann skiptir alveg jafn miklu máli og hönnunarferlið.“
„Námið í grafískri miðlun var frábært og því að þakka að ég kynntist forritun og vefsíðugerð. Hönnun, letur, myndvinnsla, textavinna, grunnur í HTML og CSS og margt fleira er allt sem ég nota daglega og kemur frá grafískri miðlun. Þessi tvö nám tvinna rosalega vel saman og ég hefði aldrei viljað sleppa því að fara í grafíska miðlun þrátt fyrir að ég einbeiti mér núna meira af vefnum en ekki prenti.“
Sjá nánar um ferilbók og vinnustaðanám
Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.
Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is
Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.
Sjá upplýsingar í skóladagatali hér á vefnum.
Kennsla í grafískri miðlun fer fram í Sjómannaskólahúsinu Háteigsvegi. En einnig fara nemendur á sérsviðinu út í fyrirtæki.
Já, nánari reglur um skólasókn er að finna hér á vefnum.
Upplýsingar um félagslíf og nemendafélag eru á síðu um félagslíf.