Menu

Innsýn í námið

Allar leiðir opnar

Námið veitir skip­stjórn­ar­rétt­indi á öll skip. Þú öðlast þekk­ingu, færni og hæfni sem krafist er til skip­stjórn­ar­rétt­inda á flutn­inga- og farþega­skipum af ótak­markaðri stærð með ótak­markað farsvið (STCW II/​2) (að loknum sigl­inga­tíma). Alþjóðlegt nám sem veitir starfs­rétt­indi, heima og erlendis, á öllum fiski- og flutn­inga­skipum við fjöl­breytt og skemmtileg störf.

Námið er viðbót við nám til C-réttinda og getur hafist þegar nem­endur eru langt komnir með að ljúka því námi. Námið er á fjórða þrepi og því á fag­há­skóla­stigi. Námið er bóknám og að hluta verk­legt og er kennt í Reykjavík (Háteigs­vegi). Meðalnáms­tími í skóla er 1 önn.

Allir áfangar braut­ar­innar eru einnig í boði sem dreifnám.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Braut­ar­lýsing

SD20 Skipstjórn D - öll skip sbr. STCW II-1, II-2

Skip­stjórn­arnám skiptist í meg­in­atriðum í sjö náms­stig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum upp­fylltum, rétt til að fá útgefið skír­teini til starfa sem skip­stjórn­armaður. Þessi braut er til sjötta náms­stigs, enda hafi nem­andi lokið fimmta náms­stigi. Sjötta náms­stig er til ótak­markaðra skip­stjórn­ar­rétt­inda (STCW II/​2) á skipum öðrum en varðskipum. Skip­stjóri fer með æðsta vald um borð í skipi. Yfir­stýrimaður er staðgengill skip­stjóra og fer með yfir­stjórn skips í for­föllum hans. Skip­stjóri skal sjá um að skip hans sé öruggt, að gengið sé tryggi­lega frá farmi og að öryggi allra þeirra sem um borð eru, áhafnar og farþega, sé tryggt.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Náms­upphaf brautar miðast við að nem­andi hafi lokið námi til C-rétt­inda skip­stjórnar skv. nýrri nám­skrá (frá 2017) eða sé langt kominn með það nám.

 

Mat á námi:

Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna
Sérreglur um námsmat í tilteknum áföngum í skipstjórn
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólum

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið skír­teini sem ýmist stýrimaður eða skip­stjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig geta rétt­indin verið yfir­stýrimaður og skip­stjóri á far­skipum af ótak­markaðri stærð, og undir- og yfir­stýrimaður á varðskipum.

Námið full­nægir þeim kröfum sem gerðar eru til bók­náms til að öðlast skír­teini STCW II/​2 sam­kvæmt alþjóðasamþykkt.

Verk­efni nem­enda

FAQ

Spurt og svarað

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í skip­stjórn fer fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi.

Þarf ég að vera með verkfæri eða annan útbúnað?

Nem­endur sem hefja nám í Skip­stjórn­ar­skól­anum verða að koma með eigin örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu vél­tækni­námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Er mætingarskylda?

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skóla­félag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í skip­stjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er styrimennstjorn@gmail.com.

Saman mynda nem­enda­félög í Tækni­skól­anum – Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Hér má lesa nánar um félagslíf Tækniskólans.

Hvað kostar nám í skipstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans. Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfs­reynslu í faginu geta sótt um að fara í raun­færnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögu­lega C stigi). Sjá nánar hér.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!