Menu

Innsýn í námið

750kW vélstjórnarréttindi

Með náminu aflar þú þér atvinnu­rétt­inda til starfa á skipum með vélarafl minna en 750 kW (auk sigl­inga­tíma).

Náms­braut til A-rétt­inda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi til­teknu vél­stjórn­ar­rétt­indi og ekki hugsuð fyrir nem­endur sem ætla í lengra nám (þeir velji náms­braut til B eða C rétt­inda). Ald­urstak­mark er 20 ár og gert er ráð fyrir að atvinnuþátt­taka hafi veitt nem­anda þann grunn sem þarf til að takast á við námið. Jafn­framt er vakin athygli á námskeiði til tak­markaðra 750 kW atvinnu­rétt­inda sem veitir leyfi til að starfa á skipum styttri en 15 m (smá­skipa­vélavörður) og viðbótarnámi til að auka þau rétt­indi í skip styttri en 24 m.

Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigs­vegi) en allar málmiðngreinar eru þó bara kenndar í Hafnarfirði (Flata­hrauni). Inn­ritað er í námið á haustönn. Lág­marks náms­tími í skóla er 2 annir.

Nokkrir áfangar brautar geta verið í boði sem í dreifnámi.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu,

Braut­ar­lýsing

VA20 Vélstjórn A - vélstjórnarréttindi á skip með aðalvél <750 kW

Vél­stjórn­arnám skiptist í meg­in­atriðum í sex náms­stig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum upp­fylltum, rétt til að fá útgefið skír­teini til starfa sem vél­stjóri. Þetta náms­stig (þriðja) er til rétt­inda til að gegna stöðu vélavarðar og vél­stjóra á skipum með vélarafl 750 kW og minna. Til sjós er starfssvið vél­stjóra að annast rekstur og viðhald vél- og raf­búnaðar og tryggja, í sam­vinnu við aðra yfir­menn um borð, að rekstur skipsins full­nægi gild­andi lögum og reglum, s.s. um öryggi skipa og meng­un­ar­varnir. Véla- og tækja­búnaður skipa er mjög fjöl­breyttur þar sem skip eru hönnuð til ólíkra hlut­verka. Störf vél­stjóra eru því víðtæk og spanna starfssvið margra starfs­stétta í landi.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Umsækj­endur þurfa að hafa náð 20 ára aldri við inn­ritun. Gert er ráð fyrir að atvinnuþátt­taka fram að því veiti nem­anda þann grunn sem þarf til að takast á við þetta nám og því er reynsla af sjó­mennsku mjög æskileg. Athuga að þessi náms­braut til A-rétt­inda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast vél­stjórn­ar­rétt­indin og ekki hugsuð fyrir nem­endur sem ætla í lengra nám (þeir velji náms­braut til B eða C rétt­inda).

 

Mat á námi:

Verklagsregla um námsmat og skráningu einkunna
Sérreglur um námsmat í tilteknum áföngum í skipstjórn
Mat á fyrra námi og námi úr öðrum skólum

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið atvinnu­skír­teini sem ýmist vélavörður, und­ir­vél­stjóri, 1. vél­stjóri eða yfir­vél­stjóri að loknum sigl­inga­tíma og örygg­isfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig (A) geta rétt­indin verið vélavörður og yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafl að 750 kW (ótak­mörkuð lengd).

Vakin er athygli á námskeiði til tak­markaðra 750 kW atvinnu­rétt­inda sem veitir leyfi til að starfa á skipum styttri en 12 m (smá­skipa­vélavörður) og viðbótarnámi til að auka þau rétt­indi í skip styttri en 24 m – viltu kannski byrja þar?

Umsagnir

Shape
Shape

Valdimar Árnason lauk námi í flugvirkjun

Í byrjun árs 2017 var komið að því, ég ætlaði að gera eitthvað meira en bara vinna. Mig langaði að gera eitthvað sem ég hafði virki­lega áhuga á. Var búinn að velta þessu fyrir mér í kannski tvö ár og svo sá ég aug­lýs­ingu á Face­book fyrir flug­virkj­anám Tækni­skólans. Aug­lýs­ingin poppaði auðvitað upp á mínum skjá því ég hef haft brenn­andi áhuga á flug­vélum síðan ég var 4 ára og er með fullt að flug­véla­tengdum síðum á Face­book.

Ég sé ekki eftir að hafa sótt um þetta sérnám því ég kynntist fólki frá öllum stéttum sam­fé­lagsins. Fólk sem hafði mis­mikinn áhuga en vildi gera það sama og ég, finna sér eitthvað sem væri öðruvísi en þau höfðu verið að vinna við. Gaman var að fylgjast með þeim öllum fá aukinn áhuga fyrir þessum tækjum háloft­anna með mér.

Námið er skemmti­legt og mjög fjöl­breytt en á köflum ansi strembið og voru flestir kenn­ar­arnir mjög færir að ein­falda efnið fyrir manni. Það sem ég tek úr þessu er auðvitað námið og kunn­átta mín að leysa vandamál en þessi  tvö ár með bekkj­ar­fé­lög­unum stendur upp úr. Tveir mánuðir fyrir norðan á Akur­eyri í verk­legu námi virki­lega þéttu hópinn og er maður heppinn að hafa eignast svona marga vini.

Rafnar Snær Baldvinsson lauk námi í vélstjórn

Vél­stjórn­ar­námið er mjög fjöl­breytt, inni­heldur mikið af nyt­sam­legum upp­lýs­ingum og hefur frá­bæra kennara sem miðla þekk­ingu eins og þeim einum er lagið. Þetta nám opnar margar dyr og gerir að verkum að það er fátt sem að flækist fyrir manni í framtíðinni. Ég mæli ein­dregið með þessu námi ef að þú ert for­vitin/​n um virkni hluta og/​eða viðgerðir.

Sigurður fór í nám í verkfræði í Háskólanum eftir nám í Véltækniskólanum.

„Fjöl­breytnin í náminu er góður grunnur. Ég finn að ég stend betur að vígi en margir sem eru með mér í verkfræðináminu hér í Háskól­anum.“

FAQ

Spurt og svarað

Er hægt að taka stúdentspróf með náminu?

Náms­braut til A-rétt­inda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast vél­stjórn­ar­rétt­indin og ekki hugsuð fyrir nem­endur sem ætla í lengra nám. Þeir nem­endur ættu frekar að velja náms­braut fyrir B-rétt­indi eða hærri rétt­indi og lýkur námi til vél­stjórn­ar­rétt­inda C og D með stúd­ents­prófi.

Þarf ég að eiga sérstakan búnað fyrir námið?

Nem­endur sem hefja nám í Vél­tækni­skól­anum verða að koma með eigin örygg­isskó, hlífðargler­augu og heyrna­hlífar sem skylt er nota í verk­legu námi skólans og við aðra vinnu þar sem kenn­arar krefjast þess að nem­endur noti hlífðarbúnað.

Hvar vinna útskrifaðir nemendur úr Véltækniskólanum?

Nem­endur sem lokið hafa námi til vél­stjórn­ar­rétt­inda A hafa öðlast rétt til að fá útgefið skír­teini sem vélavörður á skipi með vélarafl 750 kW og minna og sem yfir­vél­stjóri á skipi með vélarafl 750 kW og minna að loknum 9 mánaða sigl­inga­tíma sem vélavörður. Með þessi skír­teini geta útskrifaðir nem­endur unnið þessi störf um borð í skipum sem notuð eru í ýmsum atvinnu­greinum, s.s. við fiskveiðar, farþega­flutn­inga eða ferðamannaiðnaði.

Hvar er vélstjórn kennd?

Dagnáms­kennsla í Vél­tækni­skól­anum í Reykjavík fer að mestu fram í Sjó­manna­skól­anum Háteigs­vegi og í Hafnarfirði (Flata­hrauni og Gjótu­hrauni).

Hvað kostar nám í vélstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans.

Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nemendafélag?

Í Tækni­skól­anum er öflugt og fjöl­breytt félagslíf. Innan hvers skóla er starf­andi skóla­félag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppá­komur. Þannig hafa nem­endur í vél­stjórn á Háteigs­vegi með sér félag sem heldur uppi félags­lífi. Nem­endur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Net­fang félagsins er svirpostur@gmail.com.

Saman mynda skóla­félög í Tækni­skól­anum Nem­enda­sam­band Tækni­skólans, NST.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Í vél­stjórn­ar­rétt­indum A eru þó engir almennir áfangar, en fagáfanga er hægt að meta úr öðru sam­bæri­legu námi, t.d. málmiðngreinum og vél­virkjun. Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára staðfesta starfs­reynslu í vél­stjórn­ar­greinum geta farið í raun­færnimat. Raun­færnimat er unnið í sam­starfi við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins og er gengið út frá að eðlilegt sé að meta færni sem til staðar er óháð því hvernig hennar hefur verið aflað.

Nokkrar greinar eru metnar í raun­færni­mati og getur það stytt náms­tímann eða auðveldað nem­endum að taka það sem vantar upp á rétt­indin með vinnu. Sjá nánar hér.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!