fbpx
Menu

Kafli 9 – Skólanámskrá


Námskröfur

Nem­andi skal ljúka námi sem nemur 12 kennslu­stundum á viku eða 15 ein­ingum á önn hið minnsta. Heimilt er að víkja frá þessu ákvæði ef um er að ræða:

  • sérstaka erfiðleika í námi, svo sem lesröskun eða fötlun
  • lokaönn í námi
  • nemendur á námssamningi

Nem­andi sem fellur á önn fær aðeins heimild til inn­rit­unar á næstu önn hafi hann haft meira en 70% mæt­ingu á önn­inni og geri samning um ástundun og skóla­sókn. Nem­andi sem fallið hefur á tveimur önnum í röð eða þremur önnum sam­tals fær ekki skóla­vist á næstu önn. Ef frekari kröfur eru um náms­fram­vindu á ein­stökum brautum, eru þær birtar á viðkom­andi braut­arsíðu.

 

Námsáætlanir

Upp­bygging námsáætlana er eins fyrir alla áfanga en vikuplan er mis­mun­andi á milli spanna/​anna. Sjá nánar um gerð námsáætlana VKL-431

 

Námsgagnalisti

Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og náms­gögn í Innu, einnig á vef skólans. Náms­gagna­listi í Innu á að inn­halda öll náms­gögn, bækur, verk­færi og annað sem nem­andinn á að leggja til sjálfur.

 

Námsmat

Í ann­arlok fær nem­andi ein­kunn fyrir árangur sinn í sér­hverjum áfanga sem hann var skráður í. Fyr­ir­komulag náms­mats og vægi ein­stakra þátta í náms­matinu (verk­efna, vinnu­fram­lags, prófa) kemur fram í námsáætlun. Gefnar eru ein­kunnir í heilum tölum frá 1 til 10. Til að standast námsmat í áfanga og fá leyfi til að hefja nám í næsta áfanga þarf lág­marks­ein­kunn 5. Þó er nem­anda heimilt að útskrifast með ein­kunnina 4 ef um er að ræða áfanga sem ekki er und­an­fari annars áfanga á braut­inni. Slíkir áfangar gefa ekki ein­ingar og þarf nem­andi að skila öðrum ein­ingum í staðinn. Ef frekari kröfur eru á ein­stökum brautum, eru þær birtar á viðkom­andi braut­arsíðu.

Um kennslu og námsmat:

  • Starfstími skólaárs er 18 vikur á önn.
  • Á námsmatsdögum gilda reglur skólans um skráningu viðveru. Viðvera nemenda er skráð samkvæmt námsáætlun.
  • Síðasti skiladagur lokamatþáttar námsmats skal vera í síðustu kennsluviku og eða á námsmatsdögum í lok annar.
  • Síðasti starfsdagur samkvæmt stundatöflu er í skóladagatali skólans.

 

Miðspannar/miðannarmat

Á hverri spönn/​önn fer fram miðspannar/​miðann­armat í Tækni­skól­anum. Kenn­arar gefa nem­endum vitn­isburð um stöðu þeirra í hverjum áfanga fyrir sig. Vitn­isburðurinn byggir fyrst og fremst á því náms­mati sem þegar hefur farið fram í viðkom­andi áfanga, sjá nánar um kennslu- og miðannarmat.

 

Endurgjöf og birting einkunna

Innan 5 daga eftir hvern matsþátt sam­kvæmt námsáætlun fá nem­endur afhentar ein­kunnir í Innu. Nem­endur geta fengið að sjá úrlausnir sínar hjá viðkom­andi kennara og fengið skýr­ingar á ein­kunna­gjöf sé þess óskað. Nem­endur geta einnig skoðað feril sinn og ein­kunnir í Innu. Þegar loka­ein­kunn áfanga er birt, gefst nem­endum kostur á að fara yfir námsmat með viðkom­andi kenn­urum og leiðrétta val í samráði við skóla­stjóra/​fag­stjóra, sé þess þörf.

 

IMO – Séráfangar í skip-og vélstjórnarskólanum

Í ákveðnum áföngum í skip- og vél­stjórn eru sér­kröfur um loka­ein­kunnina 7. Sér­kröf­urnar eru skil­greindar sér­stak­lega í námsáætlun. Í þessum áföngum er heimilt að gera kröfu um lág­marks­ein­kunnina 7 í lyk­ilmatsþáttum sem vega a.m.k. 15% af loka­ein­kunn. Þeir áfangar sem sér­kröfur gilda um eru listaðar upp í LMS-470 Námsmat – sérreglur í ákveðnum áföngum í skip- og vélstjórn.


Sjá nánar á vefsíðu IMO – European Maritime Safety Agency

Alþjóðasiglingastofnunin IMO gefur út leiðbeiningar til stjórnvalda og menntastofnanna um menntun og þjálfun til að stuðla að samræmi í kröfum sem umsækjendur um skírteini þurfa að uppfylla til að fá útgefið atvinnuskírteini.

IMO – the International Maritime Organization – is the United Nations specialized agency with responsibility for the safety and security of shipping and the prevention of marine and atmospheric pollution by ships. IMO’s work supports the UN sustainable development goals. 

 

Um fall í einstökum áföngum

Falli nem­andi þrisvar í sama áfanga þarf nem­andi að sækja um undanþágu til skóla­stjóra ef hann vill halda námi áfram. Skóla­stjóri metur aðstæður nem­andans og heim­ilar frekari skóla­vist eða hafnar. Jafn­framt vísar skóla­stjóri nem­and­anum til námsráðgjafa.

 

Upptökupróf

Nem­andi á útskriftarönn sem getur ekki útskrifast vegna falls í einum eða tveim áföngum getur fengið heimild til að taka upp­töku­próf í áfang­anum eða áföng­unum ef hægt er að koma því við í samráði við. Upp­töku­próf eru tekin í samráði við viðkom­andi skóla­stjóra og þurfa að vera fram­kvæm­anleg vegna umfangs áfangans. Ef áfanginn er verk­legur þá er ekki fram­kvæm­an­legt að taka upp­töku­próf. Nem­andinn greiðir kostnað við að halda prófið. Ein­kunn fyrir úrlausn í upp­töku­prófi gildir sem loka­ein­kunn í áfang­anum.

 

Stöðu-/raunfærnimat

Í nokkrum náms­greinum getur skólinn heimilað nem­endum sínum að taka stöðu-/​raun­færnimat. Stöðu-/​raun­færnimat er ætlað að kanna þekk­ingu eða hæfni nem­enda og ákvarða í hvaða áfanga þeir skuli hefja nám í skól­anum. Þeir sem gangast undir stöðu-/​raun­færnimat greiða kostnað vegna matsins.

 

Sérúrræði við lausn matsþátta

Umsókn um sérúrræði við lausn matsþátta 
Þeir nem­endur sem glíma við námserfiðleika geta sótt um sér­úrræði við lausn matsþátta. Sótt er um sér­úrræði í Innu.

Nem­endur/​​forráðamenn geta óskað eftir viðtali við náms- og starfsráðgjafa eða kennara nám­svers, sé óskað eftir frekara sam­tali vegna þjón­ust­unnar eða ein­stök mál. Skólinn tekur ekki við grein­ing­ar­gögnum, en gott getur verið að hafa þau meðferðis þegar fundað er með náms- og starfsráðgjöfum og/​eða kennara nám­svers vegna sérþarfa.

Skráning sérúrræða í Innu
Umsókn fylgir nem­and­anum á meðan hann er í skól­anum og er því nægj­an­legt að fylla út einu sinni. Skráningar hér virka fyrir alla áfanga sem nem­andi er skráður í.

 

Meðferð ágreiningsmála

Komi upp ágrein­ingur milli nem­anda og kennara um mat úrlausnar skal farið eftir verklags­reglu um meðferð ágrein­ings­mála, VKL-425. Meðferð ágrein­ings­mála um mat úrlausnar. Finnist nem­endum á sér réttur brotinn eða illa fram við sig komið skulu þeir koma kvört­unum til skóla­stjóra eða skóla­meistara eftir því sem við á og leita liðsinnis námsráðgjafa. Náms- og starfsráðgjafar eru jafnan mál­svarar nem­enda. Finnist starfs­mönnum á sér réttur brotinn eða illa fram við sig komið skulu þeir koma kvört­unum til skóla­stjóra eða skóla­meistara eftir því sem við á. Trúnaðarmenn eru mál­svarar starfs­manna. Einnig er hægt að skrá ábend­ingu/​kvörtun í ábend­inga­kerfi skólans á slóðinni https://tskoli.is/abendingar/ og er á ábyrgð gæðastjóra að koma ábend­ingu/​kvörtun í réttan farveg skv. verklags­reglu VKL-404

 

Brautskráning

Nem­andi lýkur námi í skól­anum þegar hann hefur lokið ákveðnum áföngum og ein­inga­fjölda eins og til­greint er í braut­ar­lýs­ingu. Náms­tími til braut­skrán­ingar getur verið mis­langur og fer eftir námsaf­köstum og lengd náms­brauta. Við braut­skrán­ingu fær nem­andi skír­teini þar sem fram kemur hvaða námi hann hefur lokið.

 

 

Uppfært 6. desember 2024

Áfangastjórn