en
Menu
en

Fréttir

03. desember 2025

Lok haustannar 2025

Ágætu nem­endur

Senn líður að annarlokum og viljum við benda nem­endum á nokkur mik­ilvæg atriði sem gott er að hafa í huga áður en önn­inni lýkur.

 

Annarlok og námsmatsdagar

Síðasti starfs­dagur sam­kvæmt námsáætlun og stunda­skrám er birtur í skóladagatali en kennslulok geta verið mis­mun­andi eftir áfanga. Nánari upp­lýs­ingar um skipulag hvers áfanga má finna á Innu.

Námsmatsdagar verða 12. og 15. desember. Fyrirkomulagið er breytilegt eftir áföngum hvort nem­endur þurfi að mæta í próf, vinna í verk­efnum eða skila síðustu verk­efn­unum. Nemendur fá upp­lýs­ingar um það hjá sínum kennara.

 

Lokaeinkunnir og viðtalstímar

Loka­ein­kunnir verða birtar í Innu þriðjudaginn 16. des­ember. Sama dag verða kennarar til viðtals í sínum deildum frá kl. 10:00-12:00. Nemendur eru hvattir til að skoða námsmat og fara yfir ein­kunnir.

Upptökupróf fyrir útskriftarefni er þann 17. desember kl. 10.

 

Vinnustaðanám

Eingöngu vinnustaðanám á næstu önn? Nemendur sem gera ráð fyrir að vera eingöngu í vinnustaðanámi eftir áramótin ættu ekki að hafa val á vorönn ef þeir eru búnir að vera í samskiptum við skólastjóra. Þeir nemendur eru jafnframt beðnir að athuga hvort ekki hafi verið gengið frá námssamningi og ferilbók. Hér er hægt að ganga frá umsókn um samning og ferilbók.

 

Aðstoð í námi

Áhersla er lögð á að veita nem­endum góða aðstoð í námi og viljum við benda ykkur á þá þjón­ustu sem skólinn býður upp á:

Námsver
Þar geta nem­endur m.a. fengið hjálp við próf­töku og aðstoð við verk­efna- og ritgerðarsmíð.
Bókasafn
Á bóka­söfnum geta nem­endur fengið greiðan aðgang að upp­lýs­ingum og heim­ildum vegna náms og kennslu.
Ritver
Þar er m.a. boðið upp á aðstoð við ritgerðarskrif, heim­ilda­leit og heim­ilda­skrán­ingar.
Aukatímar
Boðið er upp á ýmsa auka­tíma í skól­anum og eru nem­endur hvattir til að nýta sér þá.
Náms- og starfsráðgjafar
Náms- og starfsráðgjafar aðstoða nem­endur við ýmis­legt sem lýtur að námi og náms­fram­vindu.


Útskrift Tækniskólans

Útskrift Tækniskólans verður haldin hátíðleg í Hörpu sunnudaginn 21. desember.

Gangi ykkur sem allra best á loka­sprett­inum!