Menu

Fréttir

08. maí 2026

Lok vorannar 2026

 

Senn líður að annarlokum vorið 2026 og mikilvægt fyrir nemendur að kynna sér helstu dagsetningar og upplýsingar sem tengjast annarlokum, námsmati og þjónustu skólans á lokasprettinum.

 

Annarlok og námsmatsdagar

Síðasti starfsdagur samkvæmt námsáætlun og stundaskrám er birtur í skóladagatali skólans, þó kennslulok geta verið mismunandi eftir áföngum. Nánari upplýsingar um skipulag hvers áfanga má finna á Innu og nemendur eru hvattir til að fylgjast vel með upplýsingum frá kennurum sínum.

Námsmatsdagar verða 19. og 20. maí. Fyrirkomulagið er breytilegt eftir áföngum, en í sumum tilfellum þurfa nemendur að mæta í próf, vinna verkefni eða skila lokaverkefnum. Nemendur fá upplýsingar hjá kennurum um framkvæmd námsmats í hverjum áfanga.

 

Lokaeinkunnir og viðtalstímar

Lokaeinkunnir verða birtar í Innu föstudaginn 22. maí. Sama dag verða kennarar til viðtals í sínum deildum frá kl. 10:00-12:00. Nemendur eru hvattir til að skoða námsmat og fara yfir einkunnir.

Upptökupróf fyrir útskriftarefni er þann 26. maí kl. 10.

 

Vinnustaðanám

Nemendur sem gera ráð fyrir að vera eingöngu í vinnustaðanámi á haustönn ættu ekki að hafa val á haustönn ef þeir eru búnir að vera í samskiptum við skólastjóra. Þeir nem­endur eru jafn­framt beðnir um að athuga hvort ekki hafi verið gengið frá náms­samn­ingi og fer­ilbók.

Hér er hægt að ganga frá umsókn um samning og ferilbók.

 

Aðstoð í námi

Áhersla er lögð á að veita nemendum góða aðstoð í námi og viljum við benda ykkur á þá þjónustu sem skólinn býður upp á:

Námsver  – Aðstoð við próftöku, verkefnavinnu og ritgerðarsmíð.
Bókasafn – Aðgangur að upplýsingum, heimildum og námsaðstöðu.
Ritver – Aðstoð við ritgerðarskrif, heimildaleit og heimildaskráningu.
Aukatímar – Fjölbreyttir aukatímar í boði fyrir nemendur.
Náms- og starfsráðgjafar – Ráðgjöf um nám, námsframvindu og framtíðaráætlanir.

 

Útskrift Tækniskólans

Útskrift Tækniskólans verður haldin hátíðleg í Hörpu laugardaginn 30. maí.

Tækniskólinn óskar öllum nemendum góðs gengis á lokasprettinum!