fbpx
en
Menu
en

Fréttir

29. desember 2023

Upphaf vor­annar 2024

Fyrsti kennsludagur og stundatöflur

Fimmtudaginn 4. janúar verður opnað fyrir stundatöflur vorannar í Innu. Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu föstudaginn 5. janúar, sjá skóladagatal nemenda.

Töflu­breyt­ingar verða dagana 4. og 5. janúar. Töflu­breyt­ingar eru ein­göngu fyrir þá sem ekki fengu áfanga í töflu sam­kvæmt vali. Óskir um töflu­breyt­ingar eru gerðar raf­rænt í Innu.

Töflubreytingar – Útskýring vegna spannafyrirkomulags
Töflubreytingar í Innu – Leiðbeiningar fyrir nemendur

 

Hagnýtar upplýsingar

Við bendum á upplýsingasíðu er varðar upphaf annar og hvetjum nem­endum til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upp­lýs­ingar um skólann og skóla­starfið.

Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og námsgögn í Innu þegar stunda­töflur birtast.

Við bendum á að IÐNÚ gefur nem­endum, starfs­fólki og kenn­urum í aðild­ar­skólum 10% afslátt af öllum vörum í skóla­vöru­versl­un­inni að Braut­ar­holti 8 og í vefverslun. Tilboðið gildir dagana 3.–13. janúar