en
Menu
en

Tækni­skólinn leggur mikið upp úr öflugri þjón­ustu sem ætlað er að styðja við nem­endur og starfs­fólk skólans. Á þessari síðu má finna hagnýtar upplýsingar um skólann, skólastarfið, námið og fleira sem gott er að kynna sér í upphafi annar.

 

Þjónusta


Skrifstofa og bókasafn

Bókasafnið Skólavörðuholti

Aðalskrifstofa skólans er á bókasafni á 5. hæð og opin á opnunartíma safnsins. Aðrar skrifstofur skólans eru á bókasöfnum á Háteigsvegi á fjórðu hæð og í Hafnarfirði á annarri hæð, sjá afgreiðslutíma safnsins. Starfsfólk safnsins aðstoðar nemendur m.a. við upplýsingaleit og heimildaöflun. Lesstofur og tölvur eru á öllum stöðum, einnig er aðstaða til prentunar og skönnunar. Upplýsingaborð er gegnt aðalinngangi á Skólavörðuholti og þar er hægt að fá almennar upplýsingar og leiðbeiningar.

 

Canvas – námsvefur

Canvas er námsvefur skólans og heldur utan um áfanga og verkefni. Innskráning í Canvas er í gegnum Microsoft aðgang. Sjá leiðbeiningar.

 

Inna

Inna heldur utan um aðra þætti náms hjá nemendum, m.a. viðveru, veikindi, námsferil og lokaeinkunnir. Við innskráningu á Innu eru notuð  rafræn skilríki. Aðstandendur ólögráða nemenda fá einnig aðgang að Innu og nemendur eldri en 18 ára geta sjálfir veitt foreldrum/forráðamönnum aðgang að Innu. Mikilvægt er að nemendur og forráðamenn gæti þess að netföng þeirra og símanúmer séu rétt skráð í Innu.

 

Aðgangs- og prentkort

Allir nemendur fá aðgangs- og prentkort meðan þau stunda nám í Tækniskólanum. Kortið gefur nemendum aukinn aðgang að skólahúsnæðinu og prentinneign. Mikilvægt er að yfirfara persónuupplýsingar í Innu og kort fást ekki afhent nema að vera með nothæfa mynd í Innu. Nýnemar fá kortin afhent í „Hvað hópum“ en aðrir nemendur sækja kortin á bókasöfnum skólans.

 

Námsgagnalisti – Upplýsingar um bækur og námsgögn eru í Innu

Nem­endur finna upp­lýs­ingar um bækur og náms­gögn í Innu. Á vefsíðu skólans má einnig sjá nánari upplýsingar um námsgagnalista og skoða námsgagnalista í exc­elskjali.

 

Tölvuþjónusta

Nemendum býðst m.a. aðgangur að Office forritum frá Microsoft, þráðlausu neti, prentun og fleira. Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu tölvuþjónustunnar.

 

Microsoft Teams

Hér má finna mynd­bönd sem sýna hvernig hægt er að sækja, setja upp og nota for­ritið Microsoft Teams.

 

Framtíðarstofa

Framtíðarstofan er hönnunar- og hátækniverkstæði skólans og er staðsett á Skólavörðuholti og í Hafnarfirði. Opnunartími og upplýsingar um bókanir er á vefsíðu skólans. Allir nemendur skólans hafa aðgang að Framtíðarstofu.

 

Styrkir, náms- og kynnisferðir

Tækniskólinn sækir árlega um styrki sem gera nemendum kleift að fara í náms- og kynnisferðir til landa innan Evrópu. Verkefnastjóri alþjóðamála hefur umsjón með úthlutun styrkja og skipulagningu námsferða. Hann er til viðtals á bókasöfnum skólans.

 

Skóladagatal, stundatöflur og töflubreytingar


Skóladagatal

Mikilvægar dagsetningar eru í skóladagatali og í Innu.

 

Spannir – Spönn 1/Spönn 2

Áfangar sem nemandi hyggst taka á önn dreifast almennt á tvær spannir og er nemandi þá í færri áföngum hverju sinni en í fleiri tímum í hverju fagi í hverri viku. Tökum dæmi: Nemandi átti að fara í 6 áfanga á önn. Í stað þess er líklegt að hann fari í 3 áfanga á fyrri spönn og 3 áfanga á seinni spönn (skiptingin gæti þó orðið önnur í sumum tilvikum). Þetta þýðir hins vegar að stundataflan getur breyst um miðja önn. Sumir áfangar, sér­stak­lega verk­legir, eru þó keyrðir með anna­fyr­ir­komu­lagi en fara þá eftir skóladagatali að öðru leyti.

 

Töflubreytingar

Í upphafi annar er gefin út ný stundatafla fyrir önnina. Ef áfangi er ekki í töflu samkvæmt vali þá getur nemandi óskað eftir töflubreytingu. Töflubreytingar eru eingöngu fyrir þá sem ekki fengu áfanga í töflu samkvæmt vali. Óskir um töflubreytingar eru gerðar rafrænt í Innu.

 

Úrsögn úr áfanga

Ef nemandi hyggst segja sig úr áfanga þarf hann að fylla út sérstakt eyðublað á bókasafninu. Nemendur yngri en 18 ára þurfa samþykki forráðamanns fyrir úrsögn úr áfanga. Úrsögn úr áfanga getur verið háð samþykki viðkomandi skólastjóra. Gott getur verið að ræða við náms- og starfsráðgjafa áður en tekin er ákvörðun um úrsögn.

 

Stundatöflur og áfangaheiti

Gagnlegar útskýringar á áfangaheitum og stundatöflum eru á síðunni stundatöflur/spannir.

 

Útskriftarnemendur skrái sig til útskriftar

Nemendur sem hyggjast útskrifast í lok annar þurfa að gefa sig fram við skólastjóra sinn og skrá sig til útskriftar. Sjá má dagsetningu í skóladagatali.

 

Valvikan

Valvikan er um miðja skólaönnina. Til þess að tryggja áframhaldandi skólavist, þurfa dagskólanemendur að mæta í viðtalstíma umsjónarkennara, yfirfara með honum áfangaval sitt fyrir næstu önn og staðfesta valið. Einnig þurfa þeir að greiða álagt staðfestingargjald sem er kr. 5000. Athugið að valvikan og staðfestingargjaldið á ekki við um nemendur sem eru í flugvirkjun, vefskóla, meistaraskóla, margmiðlun, hljóðtækni eða í almennu dreifnámi.

 

Veikindi og forföll


Athugið að ekki þarf að hringja í skólann ef nem­andi kemst ekki í kennslu­stund og/​eða námsmat vegna veik­inda.

  • Veik­indi nemenda eru skráð í Innu, sjá nánari upplýsingar um veikindi og forföll
  • Forföll kennara eru tilkynnt nemendum í Innu og með tölvupósti.

 

Félagslíf og nemendaviðburðir


Nýnemaferð Tækniskólanns haustið 2021Nýnemaferð Tækniskólanns haustið 2021

Félagslífið

Tækniskólinn leggur ríka áherslu á að í skólanum sé mikið og fjölbreytt félagslíf. Innan allra skóla Tækniskólans starfa skólafélög sem mynda nemendasamband Tækniskólans, NST. Hér má sjá nánari upplýsingar um félagslífið og verkefnastjóra félagsmála.

 

Aðstoð í námi


Námsver

Hlut­verk nám­sversins er að þjón­usta nem­endur og veita þeim sem þess þurfa aðstoð í námi. Í nám­sveri getur þú fengið aðstoð við próf­töku og stuðning við heimanám sem og almenna aðstoð í grunn­greinum. Einnig er hægt að leita til nám­svers við verk­efna- og ritgerðarsmíð.

 

Sérúrræði – lengri tími

Allir nemendur sem skilað hafa inn gögnum um leserfiðleika eða aðra námserfiðleika fá viðbótar 30 mínútur við lausn matsþátta. Sótt er um sérúrræði í Innu.

 

Náms- og starfsráðgjafar

Hlut­verk náms- og starfsráðgjafa er að standa vörð um velferð allra nem­enda, styðja þá og liðsinna í málum sem snerta nám, skóla­vist, fram­haldsnám og starfsval. Jafn­framt sinna þeir ráðgjöf til kennara. Nem­endur geta pantað viðtalstíma hjá námsráðgjöfum í gengum Innu.

 

Sálfræðingur

Skólinn býður nem­endum upp á gjald­frjálsa sálfræðiþjónustu og tekur Bene­dikt Bragi Sigurðsson sálfræðingur á móti nem­endum og eftir atvikum aðstand­endum. Tímap­ant­anir fara fram í gegnum Innu og það er mjög ein­falt og þægi­legt að panta tíma.

 

Hjúkrunarfræðingur

Nem­endum Tækni­skólans býðst þjón­usta hjúkr­un­arfræðings, sjá nánar á vefsíðu skólans.

 

Skólasókn


Nemendur skulu sækja allar kennslustundir í þeim áföngum sem þeir hafa valið sér og mæta stundvíslega. Ef nemandinn mætir ekki í skólann eða gerir ekki grein fyrir fjarveru sinni fyrstu  kennsluvikuna, er litið svo á að hann ætli ekki að stunda nám í skólanum. Sé nemandi fjarverandi úr kennslustund eða fjarverandi meira en 20 mínútur af kennslustund fær hann 1 fjarvistarstig. Komi nemandi of seint til kennslu fær hann 0,5 fjarvistarstig. Skólasóknareinkunn er gefin fyrir heildarmætingu, sjá nánar í skólareglum.

 

Húsnæði, mötuneyti og geymsluskápar


Húsnæði

TækniskólinnHúsnæði Tækniskólans er á nokkrum stöðum í Reykjavík og í Hafnarfirði. Sjá nánar um staðsetningar og opnunartíma

 

Mötuneyti

Í skól­anum er mötuneyti þar sem boðið er upp á heitan hádeg­ismat og þar er einnig hægt að kaupa sal­at­bakka, sam­lokur, mjólk­ur­vörur og fleira. Mötuneytið er á 3. hæð í aðalbyggingu Tækniskólans á Skólavörðuholti, á 4. hæð á Háteigs­vegi og á 2. hæð í Hafnarfirði.

 

Geymsluskápar

Á Háteigsvegi, Skólavörðuholti og í Hafnarfirði eru geymsluskápar til afnota fyrir nemendur án endurgjalds. Reglurnar eru einfaldar: Fyrstur kemur fyrstur fær. Ef skápur er opinn er hann laus til notkunar. Nota skal eigin lás. Skápa á að tæma og skilja eftir opna í lok skólaárs 1. júní ár hvert. Eftir það verður klippt á lása sem enn eru á skápum og innihaldi skápanna fargað.

 

Tryggingar

Nemendur og munir þeirra eru ekki tryggðir sérstaklega hjá skólanum. Fjölskyldu- og heimilistryggingar nemenda bæta ýmis tjón.

 

 

 

 

Uppfært 15. júní 2026
Áfangastjórn