27. desember 2024
Upphaf vorannar 2025
Fyrsti kennsludagur og stundatöflur
Föstudaginn 3. janúar verður opnað fyrir stundatöflur vorannar í Innu.
Töflubreytingar eru gerðar rafrænt í Innu og eru eingöngu fyrir þá nemendur sem ekki fengu áfanga sem þeir höfðu valið í töflu, eða ef verulegir annmarkar eru á töflum samkvæmt vali. Opið verður fyrir töflubreytingar dagana 3. og 4. janúar. Hér má sjá nánari upplýsingar um töflubreytingar.
Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 6. janúar.
Hagnýtar upplýsingar
Við bendum á upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nemendum til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið.
Nemendur finna upplýsingar um bækur og námsgögn í Innu þegar stundatöflur birtast.