Menu

Fréttir

23. desember 2025

Upphaf vorannar 2026

Tækniskólinn á jólum.Fyrsti kennsludagur og stundatöflur

Föstudaginn 2. janúar verður opnað fyrir stunda­töflur vorannar í Innu.

Töflu­breyt­ingar eru gerðar raf­rænt í Innu og eru ein­göngu fyrir þá nemendur sem ekki fengu áfanga sem þeir höfðu valið í töflu, eða ef veru­legir ann­markar eru á töflum sam­kvæmt vali. Opið verður fyrir töflu­breyt­ingar dagana 2. og 3. janúar. Hér má sjá nánari upplýsingar um töflu­breyt­ingar.

Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu mánudaginn 5. janúar. 

Hagnýtar upplýsingar

Við bendum á upplýsingasíðu um upphaf annar og hvetjum nemendur til að kynna sér efni síðunnar en þar má finna ýmsar upplýsingar um skólann og skólastarfið.

Upplýsingar um bækur og námsgögn má finna á Innu þegar stundatöflur birtast.