Menu

Innsýn í námið

Húsgagnabólstrun er fjölbreytt handverksnám sem snertir marga fleti byggingariðnaðarins.

Í náminu færð þú sértæka þekkingu á sviðum greinarinnar ásamt því að öðlast leikni í aðferðum og verklagi.

 

 

 

 

 

 

 

 

Brautarlýsing

HBÓ23 Húsgagnabólstrun

Meginmarkmið námsins er að nemendur öðlist sértæka þekkingu og færni til að takast á við viðfangsefni húsgagnabólstrunar. Helstu viðfangsefni eru fólgin í að bólstra og klæða ný og notuð húsgögn, fastar innréttingar, sæti og innréttingar í bifreiðum, lausa veggi og skilrúm. Náminu lýkur með sveinsprófi sem veitir rétt til að starfa sem húsgagnabólstrari og til inngöngu í meistaranám. Húsgagnabólstrari starfar aðallega á sérhæfðum bólsturverkstæðum en einnig á vettvangi verkefna, einkum við lokafrágang. Húsgagnabólstrun er löggilt iðngrein.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði er grunnnám bygginga‐ og mannvirkjagreina. Þegar nemandinn er búin með það nám getur hann sótt um nám í húsgagnabólstrun. Umsækjendur eldri en 20 ára eða með stúdentspróf geta innritað sig beint á brautina. Til að hefja nám á öðru hæfniþrepi í kjarnagreinum og dönsku þarf nemandi að hafa náð hæfnieinkunn B við lok grunnskóla.

 

Námsframvinda

Húsgangabólstrun er lög­gilt iðngrein. Meðalnáms­tími er fjögur ár með grunn­náminu, sam­tals fimm annir í skóla og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 30 vikur.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar

Að loknu námi

Húsgagnabólstrun er löggilt iðngrein. Meðalnámstími er fimm annir í skóla og 30 vikna starfsþjálfun hjá fyrirtæki/iðnmeistara. Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­próf

Húsgagnabólstrari starfar aðallega á sérhæfðum bólsturverkstæðum en einnig á vettvangi verkefna, einkum við lokafrágang.

Verkefni nemenda

Námið klárað á Erasmus+ styrk

Bólstrun í Skive Danmörku

Til Danmerkur í Húsgagnabólstrun

Klára námið í Skive

Nám og vinnustaðanám í bólstrun í Danmörku

Kom heim með ómetanlega reynslu

FAQ

Spurt og svarað

Hvað kostar námið?

Sjá upplýsingar um skólagjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld í náminu?

Nei, efnisgjöld eru innifalin í skólagjöldum.

Þarf ég að vera með verkfæri?

Nemendur sem hefja nám í bygginga- og mannvirkjagreinum verða að koma með eigin öryggisskófatnað, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem þeir skulu ávallt nota í verklegri aðstöðu Byggingatækniskólans.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upplýsingar í skóladagatali Tækniskólans.

Hvar fer kennslan fram?

Nánari upplýsingar um staðsetningu og húsnæði Tækniskólans.

Er mætingarskylda?

Já, hér má sjá nánari reglur um skólasókn í Tækniskólanum.

Get ég tekið stúdentspróf af brautinni?

Nemandi sem er í starfsnámi á framhaldsskólastigi á kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi lýkur með stúdentsprófi.

Er nemendafélag?

Nánari upplýsingar um félagslíf og nemendafélög Tækniskólans.

Hvernig sæki ég um?

Skoða nánar varðandi innritun hér.

Spurningar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!