Menu

Innsýn í námið

Fanga hið fullkomna augnablik

Nám í ljós­myndun end­ur­speglar kröfur um þekk­ingu og færni þeirra sem vinna í grein­inni.

Nem­endur læra að beita þekk­ingu sinni og verkkunn­áttu á sjálfstæðan hátt. Ljós­myndari þarf að hafa góða innsýn í flókin tækni­atriði sem varða upp­setn­ingu og vinnslu ljós­mynda sem og útprent­un­ar­mögu­leika því þróun á þessum sviðum er hröð. Ljós­myndari þarf einnig að kunna skil á sta­f­rænni tækni sem nýtir sér tölvu­tækni og prentara.

Hægt er að fylgjast með ljós­mynda­deild Tækni­skólans á Insta­gram.

Ljósmyndadeild Tækniskólans

Braut­ar­lýsing

LJÓ23 - Ljósmyndun

Ljós­myndun er gam­al­gróin iðngrein með mikla sögu og hefðir sem hefur gengið í gegnum umtalsverðar tækni­breyt­ingar. Annars vegar er sú tækni sem byggir á filmu og fram­köllun í myrkra­her­bergi og hins vegar sta­fræn tækni sem nýtir tölvu­tækni. Á fáum árum hefur orðið sú þróun að mikill meiri­hluti ljós­mynda eru teknar á sta­f­rænt form og flestir ljós­mynd­arar nota slíka tækni. Góð þekking á sta­f­ræna ferlinu frá mynda­töku til birt­ingar í mis­mun­andi miðlum er mik­ilvæg ásamt góðri þekk­ingu á öllum mynda­töku­búnaði. Auk þess að kunna skil á fag­urfræðilegum for­sendum miðilsins, bera gott skyn­bragð á lýs­ingu og mynd­bygg­ingu og þekkja vel tján­ing­ar­mögu­leika ljós­mynd­unar. Ljós­myndun er lög­gilt iðngrein.

Almennar upp­lýs­ingar

Inntökuskilyrði

Fyrst þarf að klára grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina sem tekur þrjár annir. Þegar því námi er lokið geta nem­endur sótt um sérsvið ljós­mynd­unar. Aðeins er tekið inn á sérsvið á haustin.

Nem­endur skólans sækja um braut­ar­skipti í Innu en aðrir sækja um raf­rænt á umsókn­arvef. Sjá umsókn­ar­hnapp hér ofar á síðunni.

 

Námsframvinda

Námið er sam­tals fimm annir í skóla með grunn­náminu og vinnustaðanám sam­kvæmt hæfni­kröfum fer­il­bókar að hámarki 24 vikur. Almennt er miðað við að nem­endur hafi lokið starfsþjálfun í síðasta lagi áður en nám hefst í loka­áföngum fag­brautar eða samhliða.

Náms­fram­vinda vinnustaðarnáms miðast við að nem­andinn sé búinn að upp­fylla að lág­marki 80% af hæfniviðmiðum í fer­ilbók fag­greinar til að inn­ritast í loka­áfanga brautar.

Að loknu námi

Ljós­myndun er lög­gilt iðngrein.

Próf­skír­teini af fag­braut ásamt því að starfsþjálfun sé lokið, veitir rétt til að sækja um sveins­próf í viðkom­andi grein. Sveins­próf veitir rétt til að hefja nám í Meist­ara­skóla.

Einnig er hægt að ljúka viðbót­ar­námi til und­ir­bún­ings námi á háskóla­stigi en slíku námi lýkur með stúd­ents­prófi.

Nánari upp­lýs­ingar

Í grunn­náminu þurfa nem­endur að nota Adobe for­rit­un­ar­pakkann og er hægt að kaupa nem­enda­leyfi á bóka­safni skólans.

Það er hægt að klára stúd­ents­próf eftir að námi í skól­anum lýkur eða búa sig undir nám á háskóla­stigi með öðrum hætti.

Umsagnir

Shape
Shape

Fór í grunnnám upplýsinga- og fjölmiðlagreina og síðan ljósmyndun.

María lærði ljós­myndun að loknu grunn­námi og er mjög ánægð með grunnnám upp­lýs­inga- og fjölmiðagreina. „Það er góður grunnur fyrir allt nám og þá sér­stak­lega ljós­myndun þar sem ég er að fá sér­hæf­ingu á mínu áhugasviði.“

FAQ

Spurt og svarað

Er öruggt að ég komist í starfsþjálfun / á samning til að klára námið?

Það er erfitt að fullyrða um að nem­endur komist í starfsþjálfun eftir að námi í skól­anum lýkur. Það fer allt eftir eft­ir­spurn hverju sinni.

Hvað kostar námið?

Sjá upp­lýs­ingar um skóla­gjöld í gjaldskrá Tækniskólans.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður náms­manna veitir allar upp­lýs­ingar um láns­hæfi náms á menntasjodur.is

Eru efnisgjöld?

Nei, efn­is­gjöld eru innifalin í skóla­gjöldum.

Hvenær hefst kennsla?

Sjá upp­lýs­ingar í skóladagatali hér á vefnum.

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í ljós­myndun fer fram í Sjó­manna­skól­anum á Háteigs­vegi. En einnig fara nem­endur á sérsviðinu út í fyr­ir­tæki.

Er mætingarskylda?

Já,  nánari reglur um skóla­sókn er að finna hér á vefnum.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!