fbpx
Menu

Innsýn í námið

24 m skipstjórnarréttindi

Með náminu aflar þú þér atvinnuréttinda til starfa á skipum styttri en 24 metrar (að loknum siglingatíma).

Námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi tilteknu skipstjórnarréttindi og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám (þeir velji námsbraut til B eða C réttinda). Aldurstakmark er 20 ár og gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka hafi veitt nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við námið. Jafnframt er vakin athygli á atvinnuréttindanámskeiði til að starfa á skipum styttri en 15 m (smáskipapróf) og svo skemmtibátaprófi sem veitir heimild til að sigla skipum allt að 24 m lengd en þó ekki í atvinnuskyni (mótor- og seglbátar, má sigla með farþega en ekki gegn gjaldi).

Námið er bæði bóknám og verknám og er kennt í Reykjavík (Háteigsvegi). Lágmarks námstími í skóla er 2 annir. Eingöngu er opið fyrir umsóknir í dagnám fyrir haustönn en opið er fyrir umsóknir í dreifnám báðar annir. Allir áfangar braut­ar­innar eru í boði í dreifnámi.

Sjá áfanga- og annarskipulag á námsskipulagssíðu.

Brautarlýsing

SA20 Skipstjórn A - skip að 24 metrum

Skipstjórnarnám skiptist í meginatriðum í sjö námsstig sem að námi loknu veita hvert um sig, að öðrum skilyrðum uppfylltum, rétt til að fá útgefið skírteini til starfa sem skipstjórnarmaður. Þetta námsstig (þriðja) er til réttinda til að gegna stöðu skipstjóra eða stýrimanns á skipum sem eru styttri en 24 metrar að skráningarlengd og stöðu undirstýrimanns á skipum að 45 metrum að skráningarlengd í innanlandssiglingum.

Almennar upplýsingar

Inntökuskilyrði

Umsækj­endur þurfa að hafa náð 20 ára aldri við inn­ritun. Gert er ráð fyrir að atvinnuþátttaka fram að því veiti nemanda þann grunn sem þarf til að takast á við námið og því er reynsla af sjómennsku mjög æskileg.

Athuga að námsbraut til A-réttinda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast þessi tilteknu skipstjórnarréttindi og ekki hugsuð fyrir nemendur sem ætla í lengra nám. Þeir velja námsbrautir til B eða C réttinda.

Ef þú hefur annað nám eða starfs­reynslu að baki þá má vera að hægt sé að meta eitthvað af því og stytta þannig námið sem framundan er. Hér má sjá nánari upplýsingar um mat á fyrra námi.

Að loknu námi

Þú öðlast rétt til að fá útgefið skírteini sem ýmist stýrimaður eða skipstjóri að loknum siglingatíma og öryggisfræðslu – fyrir þetta rétt­inda­stig geta réttindin verið stýrimaður og skipstjóri á skipum styttri en 24 m að skráningarlengd í strandsiglingum og innanlandssiglingum, og undirstýrimaður á skipum styttri en 45 m í innanlandssiglingum.

Vakin er athygli á atvinnuréttindanámskeiði til að starfa á skipum styttri en 12 m (smáskipapróf) og svo skemmtibátaprófi sem veitir heimild til að sigla skipum allt að 24 m lengd en þó ekki í atvinnuskyni (mótor- og seglbátar, má sigla með farþega en ekki gegn gjaldi) – viltu kannski byrja þar?

Verkefni nemenda

Skipstjórnarverkefni

Siglingarpróf

FAQ

Spurt og svarað

Er hægt að taka stúdentspróf með náminu?

Náms­braut til A-rétt­inda er fyrst og fremst fagnám til að öðlast skipstjórnarréttindin og ekki hugsuð fyrir nem­endur sem ætla í lengra nám. Þeir nem­endur ættu frekar að velja náms­braut fyrir B-rétt­indi (með stúdentsleið) eða C-réttindi sem lýkur með stúd­ents­prófi.

Er námið lánshæft?

Menntasjóður námsmanna veitir allar upplýsingar um lánshæfi náms á menntasjodur.is

Hvar fer kennslan fram?

Kennsla í skipstjórn fer fram í Sjómannaskólanum Háteigsvegi.

Þarf ég að vera með verkfæri eða annan útbúnað?

Nemendur sem hefja nám í Skipstjórnarskólanum verða að koma með eigin öryggisskó, hlífðargleraugu og heyrnahlífar sem skylt er nota í verklegu véltækninámi skólans og við aðra vinnu þar sem kennarar krefjast þess að nemendur noti hlífðarbúnað.

Er mætingarskylda?

Er nemendafélag?

Í Tækniskólanum er öflugt og fjölbreytt félagslíf. Innan hvers skóla er starfandi skólafélag sem heldur utan um félagslíf skólans, klúbba, keppni innan og utan skólans og aðrar uppákomur. Þannig hafa nemendur í skipstjórn á Háteigsvegi með sér félag sem heldur uppi félagslífi. Nemendur sjá sjálfir um að móta, þróa og byggja upp þetta starf.

Netfang félagsins er [email protected].

Saman mynda nemendafélög í Tækniskólanum – Nemendasamband Tækniskólans, NST.

Hér má lesa nánar um félagslíf Tækniskólans.

Hvað kostar nám í skipstjórn?

Fyrir dagnámið er greitt fast gjald fyrir eina önn í einu, sjá gjaldskrá Tækni­skólans. Fyrir áfanga í dreif­námi er greitt ein­inga­gjald fyrir sér­hvern áfanga og eitt skrán­ing­ar­gjald á umsókn.

Er nám úr öðrum skólum metið, t.d. áfangar eða stúdentspróf?

Já, almennir fram­halds­skóla­áfangar eru almennt metnir og ein­hverjum til­vikum nám úr háskólum og sér­skólum sem tengjast fagáföngum námsins (fagáfangar). Í skipstjórnar­rétt­indum A eru þó engir almennir áfangar, en fagáfanga er mögulega hægt að meta úr öðru sam­bæri­legu námi, t.d. sjávarútvegsfræðum. Sjá nánar hér.

Er hægt að fá áfanga metna í raunfærnimati?

Já, þeir sem hafa náð 23 ára aldri og hafa 3 ára starfsreynslu í faginu geta sótt um að fara í raunfærnimat, en það nær fyrst og fremst til fyrstu áfanga (kenndir á A, B og mögulega C stigi). Sjá nánar hér.

Spurningar

Hafðu samband og við svörum þér um hæl!

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.
Var efnið á síðunni hjálplegt?
Frábært það eru góðar fréttir!