en
Menu
en

Adobe – uppsetning á MAC

31. október 2019

Adobe – uppsetning á MAC

Síðast uppfært: 14. október 2025

Þessar leiðbein­ingar sýna þér hvernig á að sækja og setja upp Adobe/​Creative cloud á MAC.

───

Yfirlit:

  1. Náðu í Adobe uppsetningar forritið
  2. Afþjappaðu möppuna
  3. Virkja uppsetningu á utanaðkomandi forritum
  4. Keyrðu uppsetninguna
  5. Skráðu þig inn í Adobe Creative Cloud
  6. Setja upp Adobe forrit
ATH: Áður en uppsetning er hafin þarf að passa að það séu ekki eldri útgáfur af Adobe forritum á tölvunni þinni. Ef svo er þá þarftu að fjarlægja þau fyrst með því að fylgja leiðbeiningunum hér.


Hvaða örgjörvi er í tölvunni þinni ?

Fyrst þarft þú að vita hvaða örgjörvi er í tölvunni þinni. Til að finna það ferð þú efst í vinstra hornið á skjánum þínum og smellir á eplið, þar smellir þú á „About this Mac“. Undir glugganum Overview þar sérð þú hvaða „Processor“ er í tölvunni, til dæmis er myndin hér fyrir neðan að sýna Intel Core örgjörvi.

            


1. Náðu í Adobe uppsetningar forritið

Smelltu hér til að sækja tólin sem þú þarft til að setja upp Adobe.
Hérna þarftu að skrá þig inn með Tækniskóla aðganginum þínum.

Innskráning á Microsoft portal

ATH: Ef þú veist ekki Tækniskóla aðganginn þinn eða þú ert í vandræðum með aðgangin þinn, þá er skalt þú athuga Skólanetfang og Lykilorð.

Opnaðu “Adobe” skjalið, Þar sérðu fjórar möppur, þú velur möppu eftir því hvaða örgjörva þín tölva er með;

1. Intel Core örgjörvi, þá velur þú möppuna sem heitir „Mac“

2. Apple M1+ örgjörvi, Þá velur þú möppuna sem heitir „Mac Fyrir M örgjörva“

Næst mátt þú tvísmella á möppuna sem þú velur og þegar þangað er komið mátt þú ýta á punktana þrjá og velja þar „download“

ATH: Veldu möppuna „BYOD_SELF_SERVICE_MAC_INTEL_V2025_en_US_MAC“ ef þú ert með Intel örgjörva.


2. Afþjappaðu möppuna

Byrjaðu á því að afþjappa möppuna sem sem þú varst að sækja, það er gert með því að tvísmella á hana.

Í henni þarf líka að afþjappa möppuna sem heitir  MAC_Adobe.zip, MAC_M1.zip eða MAC_Universal.zip eftir því hvaða örgjörva þú ert með.

Hvernig á að afþjappa Adobe pakkan


3. Virkja uppsetningu á utanaðkomandi forritum

Til að geta sett upp utanaðkomandi forrit, eins og Adobe pakkann, þarf að gefa tölvunni leyfi.

Best er að fara í System Preferences með því að ýta á command takkann og spacebar á sama tíma og skrifa þar „system preferences“ og þar smellið á Security & Privacy.

Þegar að þar er komið þarf að fara í General gluggann efst og svo smella á lásinn neðst í glugganum til að leyfa breytingar. Það þarf hér að stimpla inn lykilorðið að tölvunni. Að lokum hakið þið síðan við „App Store and identified developers “ til að leyfa breytingar frá utanaðkomandi forritum.


4. Keyrðu uppsetninguna

Í “MAC_SELF_SERVICE” möppunni þarf að fara í “Build” og keyra svo “MAC_SELF_SERVICE_Install.pkg” forritið.
Sýning á hvernig á að keyra Adobe Uppsetninguna á MAC

ATH: Í Catalina stýrikerfinu hefur verið galli sem gerir að verkum að ekki er hægt að ýta á “Continue” takkann. Ef þú lendir í þessu þarf að endurræsa tölvuna og prófa að keyra skjalið aftur. Ef þú færð „installation failed“ þarf mögulega að uppfæra stýrikerfið þitt.

5. Skráðu þig inn í Adobe Creative Cloud

Þegar uppsetningin klárast opnarðu “Adobe Creative Cloud” forritið. Í reitinn “email address” skrifarðu “tskoli.is” og smellir á “Continue” takkann, þá mun nýtt innskráningarviðmót opnast þar sem þarf að skrá þig inn með Tækniskóla aðganginum.Hvernig á að skrá sig inn i creative cloudInnskráning á Microsoft portal


6. Setja upp Adobe forrit

Í þessu viðmóti getur þú farið í “All Apps” og sótt öll þau Adobe forrit sem þú vilt hafa.

hvernig á að setja upp adobe forrit i creative cloud