fbpx
Menu

Stefna Tækniskólans er að einelti, kynferðisleg áreitni, kyn­bundin áreitni, ofbeldi og ótilhlýðileg hátt­semi í hvaða mynd sem er, sé ekki liðið. Leita skal allra ráða til að fyr­ir­byggja slíkt og leysa þau mál sem upp koma á sem far­sæl­astan hátt.

 

Skilgreiningar og upplýsingar

Einelti

Síend­ur­tekin hegðun sem almennt er til þess fallin að valda vanlíðan hjá þeim sem fyrir henni verður, svo sem að gera lítið úr, móðga, særa eða ógna viðkom­andi eða að valda honum ótta.

Dæmi um hegðun ger­anda, sem getur verið sam­nem­andi, kennari eða annar starfsmaður skólans eða gestur á vegum skólans:

  • Viðkomandi er undir stöðugu eftirliti og markvisst leitað að mistökum hans
  • Upplýsingum er haldið frá viðkomandi
  • Gagnrýni er látin í ljós á niðrandi eða neikvæðan hátt í viðurvist annarra
  • Viðkomandi er markvisst sniðgenginn og útilokaður
  • Baktal og slúður
  • Einn eða fleiri skemmta sér á kostnað annars
  • Niðrandi athugasemdir eða dylgjur
  • Endurteknar skammir
  • Endurtekin stríðni

Ofbeldi

Hvers kyns hegðun sem leiðir til, eða gæti leitt til, lík­am­legs eða sál­ræns skaða eða þján­ingar þess sem fyrir henni verður. Einnig hótun um slíkt, þvingun eða handa­hófs­kennd svipting frelsis.

Kynbundin áreitni

Hegðun sem tengist kyni þess sem fyrir henni verður, er í óþökk viðkom­andi og hefur þann til­gang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkom­andi og skapa aðstæður sem eru ógn­andi fjand­sam­legar, niðurlægj­andi, auðmýkj­andi eða móðgandi fyrir viðkom­andi.

Dæmi:

  • Óviðeigandi eða óþægilegar athugasemdir um útlit, framkomu eða einkalíf
  • Viðkomandi er ávallt ávarpaður í því kyni sem meirihlutinn tilheyrir
  • Efast er um hæfi viðkomandi sökum kyns síns
  • Uppnefni þar sem notuð eru gróf kynbundin orð
  • Útilokun frá hópastarfi vegna kyns

Kynferðisleg áreitni

Hvers kyns kynferðisleg hegðun sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður og hefur þann til­gang eða þau áhrif að misbjóða virðingu viðkom­andi, einkum þegar hegðunin leiðir til ógn­andi, fjand­sam­legra, niðurlægj­andi, auðmýkj­andi eða móðgandi aðstæðna. Hegðunin getur verið orðbundin, táknræn og/​eða lík­amleg.

Dæmi:

  • Ónauðsynleg snerting
  • Kynferðislegt tal
  • Sýning klámfenginna eða kynferðislegra mynda
  • Gláp
  • Kynferðislegar athugasemdir um útlit eða klæðaburð

Kynferðislegt ofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi eru kynferðislegar athafnir gagn­vart ein­stak­lingi sem ekki hefur gefið eða er ófær um að veita samþykki sitt. Kynferðislegt ofbeldi getur falið í sér:

  • Káf og þukl innan sem utan klæða á kynfærum eða öðrum persónulegum stöðum
  • Munnmök
  • Samfarir eða tilraun til þeirra
  • Kynferðislegar myndatökur, áhorf á persónulega staði eða sýna/senda kynferðislegt efni

Hefur þú orðið fyrir kynferðislegri áreitni og/eða ofbeldi?

Nokkrir punktar sem vert er að hafa í huga:

  • Talaðu við einhvern sem þú treystir. Að segja frá ofbeldinu/áreitninni er fyrsta skrefið til að stöðva það. Það er mikilvægt að láta vita svo viðkomandi fái ekki tækifæri til að halda slíkri hegðun áfram gagnvart þér eða öðrum.
  • Þú getur fengið hjálp.
  • Með því að segja frá getur þú unnið úr sársaukanum og öðlast meiri styrk.
  • Ábyrgðin er aldrei þín.
  • Ofbeldið er aldrei þér að kenna.
  • Hafðu samband við lögreglu og/eða neyðarmóttöku ef þú hefur orðið fyrir ofbeldi. Símanúmer lögreglu er 112.

Önnur ótilhlýðileg háttsemi

Getur meðal annars falist í lít­ilsvirðandi fram­komu, klám­feng­inni hátt­semi eða snert­ingu sem þykir nær­göngul eða óviðeig­andi.

Hvert get ég að leitað?

Ef þú verður fyrir einelti, áreitni og/​​eða ofbeldi innan skólans eða á viðburði á vegum skólans skalt þú leita til ein­hverra eft­ir­tal­inna aðila:

Þú getur hringt, sent tölvu­póst eða farið og hitt viðkom­andi.

 

Eins er hægt að hafa sam­band við eft­ir­far­andi aðila vegna kynferðisbrota:

Hvernig er tekið á málinu?

Alltaf er málið rann­sakað og aflað eins mik­illa upp­lýs­inga og hægt er. Síðan fer það eftir alvar­leika brotsins hvernig tekið er á málinu. Sem dæmi má nefna getur ger­andi fengið áminn­ingu skóla­meistara og brott­vísun ef hann brýtur af sér aftur. Ef málsaðilar eru undir 18 ára er fundað með þeim og for­eldrum. Þolandi fær stuðning og þá aðstoð sem hann þarf og fylgst er með hvort áreitni og/​​eða ofbeldið end­ur­tekur sig.

Spurn­ingar

Spurningum verður svarað eins fljótt og auðið er

  • This field is for validation purposes and should be left unchanged.